Fyrsti jólasveininn kominn
Stekkjarstaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist inn í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.
Hann vildi sjúga ærnar,
- þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.

Andrea var eins og flest börn mjög spennt í gær yfir jólasveininum. Hún hefur mikið pælt í því undanfarna daga, hvernig jólasveininn getur fylgst með henni og hvernig hann geti sett í skóinn, sérstaklega ef glugginn er lokaður. Hún sættist á þá skýringar að jólasveinarnir og grýla eru með risastóran kíkir upp í Esju og með honum fylgjast þau með öllum börnum. Jólasveinarnir vilja bara fylgjast með góðu börnunum en Grýla vill fylgjast með óþekku börnunum. Hún hefur því oft spurt þegar hún er stillt og að dunda sér, hvort hún sé góð núna og hvort að jólasveininn sjái sig.
Hún var ekki lengi að vakna í morgun og kíkja í skóinn sinn og viti menn auðvitað hafði hún fengið í skóinn
Hún fór ánægð í sparifötin sín og með armbandið sem sveinki gaf henni, alveg tilbúin á jólaballið í leikskólanum.
Af litlu bumbuskvísunni er það að frétta að bumban er orðin 29 vikna og dafnar vel. Síðast liðnir dagar hafa verið erfiðir að sökum álags og streitu. Ég var tekin úr vinnu í 10 daga til að minnka álagið og það hjálpaði mikið, blóðþrýstingurinn lækkaði og þessi hjartsláttarköst hættu. Var að fá svona hraðan púls allt í einu þegar álagið og streitan varð of mikil. Við fórum í sónarskoðun á mánudaginn og leit allt vel út, reyndar var ekki fæðingarlæknirinn með okkur þar sem hún var farin í jólafrí. Ljósan sem var með okkur var mjög almennileg og skoðaði hreyfingarnar á höndum og fótum. Hún gerði engar mælingar þó nema á höfði, mitti og legvatni. Henni reiknaðist að skvísan væri orðin 1 kg og ætti líklega eftir að þrefalda þá þyngd sína, miðað við fulla meðgöngu. Hún náði nokkrum góðum myndum fyrir okkur og sást greinilega að þær systur verða frekar líkar, sérstaklega munnsvipurinn
Hún gaf okkur síðan annan sónartíma í janúar og verður þá fæðingarlæknirinn með okkur. Síðan ákváðum við að fara í þrívíddarsónar og förum í hann núna á miðvikudaginn
| Print article | This entry was posted by gudrun on December 12, 2008 at 09:52, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.

about 1 year ago
Vá 29 vikur?
Mér finnst bara ca. 3 vikur síðan að þú sagðir mér að þú værir preggý:)
Á mínu heimili er einmitt vaknað mjög mjög snemma og er sú stutta bara mjög hrifin af því að jólasveinninn sé vinur hennar og gefi henni í stígvélið sem að hún valdi sjálf hahahaha