Jæja eins og allir vita þá hefur febrúar verið frekar viðburðarríkur hjá okkur í Þrastarásnum.

Litla skvísan ákvað að koma í heiminn þann 8 febrúar, nennti ekki að bíða til 27. Hún sem sagt eins og systir sín fannst alveg nóg að vera bara 37 vikur í bumbunni. Það var svo sem fínt, ekki kvarta ég yfir því. Fæðingin gekk ofboðslega vel og dafnar sú stutta vel. Hún fékk smá gulu eins og við var að búast en er hún svo til farin núna. Við þurftum samt ekki að fara með hana í ljós. Hún er búin að ná fæðingarþyngd sinni og vel það. En hún fæddist 3.155 grömm (12,5 mörk) og er hún núna 16 daga gömul orðin 3.420 grömm.  Andrea Ruth er mjög stolt stór systir og er dugleg að hjálpa til.

Gefjun tekur nýja erfingjanum bara vel líka, vill þefa af henni annað slagið en lætur hana annars alveg í friði. En þegar maður heldur á litlunni þá er Gefjun oft mætt á svæðið og vill fá knús og kelerí líka. Reyndar fyrstu dagana eftir heimkomuna var Gefjun frekar erfið og gerði í því að gera það sem er bannað og alltaf þegar maður var upptekinn af að sinna litlunni.

Mikið er um afmæli í febrúar og startaði Elísabet Árný afmælishrinunni með því að verða þrítug þann 6. febrúar, síðan varð Jón Sævar 17 ára þann 11. febrúar og auðvitað annar stærsti dagurinn í febrúar var auðvitað sá 12 en þá varð Andrea Ruth 5 ára. Hún fékk tvær afmælisveislur. Fjölskyldan kom í afmæliskaffi á sjálfan afmælisdaginn og var það voða gaman. Andrea skemmti sér mjög vel og var ánægð með að litla systir var í veislunni og að hún væri í fína kjólnum sem Andrea gaf henni. Á laugardeginum (14. feb.) var síðan barnaafmælið, það var haldið að þessu sinni í Veröldinni Okkar í Smáralind og bauð Andrea vinum, frænkum og frændum. Það heppnaðist mjög vel og tókst Gísla vel að hafa stjórn á 15 börnum enda ekki við öðru að búast af honum.  Gulli lauk síðan afmælishrinunni með því að verða þrítugur þann 20. febrúar. Þannig það er mikið um veislur í febrúar og í framtíðinni hérna á bæ verður heilmikið að gera fyrstu vikurnar í febrúar.

Annað sem hefur gerst í febrúar er að Andrea fór í 5 ára skoðun, hún kom mjög vel út í þroskamatinu og stóð sig eins og hetja þegar hún fékk sprautuna síðan fór hún til augnlæknis í dag og lítur það ljómandi vel út. Hún hefur góða þrívíddarsjón, notar augun saman og rennur vinstra augað ekkert til lengur. Hún sá stafina í neðstu línunni en á samt að nota gleraugun áfram til þess að sjónin skerpist enn frekar og þá sérstaklega á vinstra auganu, þar sem það er fjarsýnna en það hægra.