Archive for March, 2009

Skilaboð frá Andreu til Yrju og Ronju

Video skilaboð að hætti 21 aldarinar til þýskalands.

Smá update…

Smá fréttir af okkur. Litla skvísan dafnar vel, hún þyngdist um 340 gr. síðustu viku, rosalega dugleg :) Andrea er einnig búin að vera dugleg að hjálpa mömmu sinni. Á mánudaginn var skipulagsdagur í leikskólanum og tók hún sig því til og sópaði alla íbúðina og raðaði skónum inn í skáp, mamman var síðan skömmuð seinna um daginn fyrir að ganga ekki frá skónum sínum inn í skáp aftur eftir notkun!! Hún stendur sig rosalega vel í ljósunum og virðast þau virka mjög vel á exemið hennar :) Hún hefur t.d. alltaf verið frekar slæm eftir bað en eftir baðferðina í gær var alls ekkert að sjá, sem var mjög ánægjulegt.  :)

Fann þetta á barnalandi og ákvað að skella þessu inn, ýmislegt sem passar henni Andreu okkar.

Vatnsberinn

20. janúar – 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skilja heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.