María Þrá Gísladóttir

Þá er sú yngsta komin með nafn :) Við skírðum í gærdag í efstuhliðinni og var dagurinn æðislegur út í eitt. Hann var langur en mjög góður, veðrið æðislegt og spáðum við í því aðeins um morgunin að skíra út á palli, en það var aðeins of kalt til þess. Einar fríkirikjuprestur skírði, hann skírði líka Andreu Ruth. Andrea sagði nafnið, en hún þurfti að æfa sig aðeins þar sem hún átti erfitt með að segja Þrá, sagði alltaf hrá. Ekki gaman að heita María Hrá ;) en hún stóð sig eins og hetja, sönn stór systir :)

Það var svo gaman að hitta alla ættingjana og ánægjulegt að svona margir gátu deilt deginum með okkur :)

Við viljum einnig þakka fyrir allar fallegu gjafirnar sem María Þrá fékk :)

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.

3 Responses to María Þrá Gísladóttir

  1. Til hamingju með nafnið á Prinsessunni :)

  2. Bjarni M says:

    Til lukku með nafnið! Flottar myndirnar úr skírninni :)

  3. Fjóla says:

    Takk fyrir síðast. Spurðum Kjartan eftir veisluna hvað litla barnið héti. Hann svaraði að það héti “Jesú”, enda eru þessi kríli alveg guðdómleg ;)

    kv. Fjóla