Þá er María Þrá orðin 3ja mánaða í dag. Ekkert smá fljótt að líða. Hún var í gær í 3ja mánaða skoðun og átti að fá fyrstu sprautuna sína. En henni var frestað um viku, ástæðan fyrir því er að á miðvikudaginn þá kvefaðist skvísan aftur. Hún var með ansi stíflaðan nebba í gær og hóstaði soldið hjá lækninum. Hún var hlustuð og fannst Önnu Margréti lækni vera svo lítið ofan í henni. Þess vegna fékk skvísan ekki sprautu og á að kúra bara inni. Hún er ekki með stíflaðan nebba í dag, en er samt kvefuð.. hefur verið að hnerra. Hún var vigtuð og er orðin 5.860 gr og alveg heilir 59 cm. Svaka stór skvísa sem er ofboðslega hrifin af stóru systur sinni.
Af Andreu Ruth er allt fínt að frétta, hún er mikið að spá í því þegar hún verður þetta gömul, hvað verður María þá gömul. t.d. þegar Andrea verður orðin 8 ára og María Þrá 3 ára, þá ætlar Andrea að lesa fyrir hana sögur á kvöldin.