júróvisjónið byrjaði í gær og var Andrea búin að bíða eftir því með óþreyju. Hún pantaði hamborgara í matinn og keypti Gísli handa henni smá gúmmí til að hafa með keppninni. En skvísan var svo spennt að hún steingleymdi því en bað um sleikipinna :) Hún skemmti sér k0nunglega og hafði alveg skoðun á lögunum. Hún var alveg viss um að Belgía (Elvis gaurinn) myndi tapa, henni fannst Hvíta Rússland leiðinlegt en það hindraði hana ekki í að dansa við lagið. Hún var ánægð með tyrkina, rúmena og finnana. Hún kunni meira að segja viðlagið við finnska lagið og söng með hástöfum.  Hún fékk auðvitað að kjósa og var smá spælt yfir að mega ekki kjósa hana Jóhönnu Guðrúnu en kaus þess í stað Tyrkland og Finnland.  Frökenin var svo upptjúnuð eftir keppnina að hún ætlaði aldrei að sofna og var því frekar úrill í morgun :) Hún reyndi samt sitt besta til að vera prúð svo hún gæti nú fengið að horfa á júróvisjón aftur á fimmtudaginn. Henni finnst svo óþægilegt þegar það er mikil birta frammi á morgnanna, morgunsólin skín inn um eldhúsgluggann hjá okkur… hún fór fram á gang, ætlaði að athuga hvort það væri ekki mynd af Jóhönnu Guðrúnu í fréttablaðinu… en stoppaði í ganginu vegna of mikillar birtu og fann slökkvarann. Ætlaði að slökkva ljósið, en það var ekki kveikt heldur var þetta bara morgunsólin. Það væri nú þægilegt að eiga við hana á morgnanna ef hægt væri að slökkva á sólinni rétt á meðan hún er að vakna. En það eru víst draumórar.

Af Maríu Þrá er það að frétta að kvefið virðist vera að minnka 7-9-13. Hún er að fara á morgun í 3ja mánaða sprautuna og verður hlustuð í leiðinni. Andrea Ruth er aftur á móti frekar mikið kvefuð, með ljótan hósta og mikið nasakvef. Það fer vonandi að lagast, annars er einnig nýtt hjá Andreu Ruth og það er að hana klæjar í blóðinu…. veit ekki alveg hvernig á að leysa það mál. Held að það sé komið vegna þess að hana langar í mixtúruna sem hún fékk hjá húðsjúkdómalækninum, en hún er kláðastillandi og ansi bragðgóð. Fékk hana við exeminu en á bara að taka hana inn þegar exemið er það slæmt að hana klæjar mikið í það svo hún sé ekki að klóra sér á nóttinni.