Sumarið virðist vera komið
Hérna í Þrastarásnum er allt gott að frétta, lífið gengur sinn vanagang. Andrea Ruth er mikið að pæla í öllum hlutum og er farin að minna einna helst á rassálfana í Ronju Ræningjadóttur. Algengasta orðið út úr hennar munni undanfarna daga og vikur er ,,Afhverju?” Afhverju er viðkvæðið við öllu sem maður biður hana um að gera. Hún er ofboðslega dugleg að leika við Maríu Þrá og finnst þeirri stuttu það ótrúlega gaman. Hún er svo hrifin af stóru systur sinni, Andrea þarf bara að birtast og segja hæ við hana þá fer María að brosa og hjala.
Við vorum að koma úr foreldraviðtali á leikskólanum og við eigum greinilega bara alveg frábæra stelpu. Það gengur rosalega vel á leikskólanum og það var allt mjög svo jákvætt sem við fengum að heyra, ekki neitt neikvætt. Hún er dugleg, með góða einbeitingu, nákvæm, þolinmóð (það þekkist reyndar ekki hérna heima) og margt fleira jákvætt. Ekkert smá gaman að fá svona fréttir af henni. Hún stendur sig greinilega mjög vel í leikskólanum.
Við erum að fara til eyja um hvítasunnuna. Amma gamla verður 89 ára og á að halda upp á afmælið með stæl
Það verður vonandi gott veður svo hægt sé að gera eitthvað skemmtilegt með Andreu. Lofaði henni síðast að næst þegar við færum til eyja þá yrði farið í fjöruferð… vonandi verður hægt að standa við það.
| Print article | This entry was posted by gudrun on May 26, 2009 at 09:46, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
about 1 year ago
já þetta verður gott sumar það er allveg víst