Bjartir dagar hefjast á morgun hérna  í firðinum og hafa leikskólabörn verið að vinna listaverk sem verða til sýnis yfir dagana. Leikskólinn hennar Andreu sýnir sín verk á Bæjarskrifstofunum. Ég hvet alla til að fara og kíkja á listaverkin, Andrea var að vinna í þessu verkefni. Þemað var höfnin, þar sem Hafnarfjarðarhöfn er 100 ára. Þau fóru einmitt í dag að hengja upp listaverkin sín. Andrea sagði að þetta hefði verið skemmtilegasti dagurinn, hjólaði í leikskólann, fór í strætó og hengdi upp listaverkin, setti niður kartöflur og fræ til að rækta gulrætur og fleira.

Ég fór á bókasafnið og náði í bókina hennar Guðrúnar Kvaran um nöfn íslendinga.

Guðrún: Nafnið mjög algengt, líklega eins og flestir vita. Nafnið er þekkt á öllum norðurlöndunum og Þýskalandi. Það barst til Bretlands frá Þýskalandi.  Nafnið merkir: guðlegur leyndardómur.

Gísli:  Nafnið kemur fyrir í Landnámu og fornsögum. Þekktasti einstaklingurinn er væntanlega Gísli Súrsson. Nafnið merkir: herfangi.

Haukur:  Nafnið kemur einnig fyrir í Landnámu og víða í Íslendingasögunum.

Andrea:  Nafnið var fyrst notað hérna í lok 17. aldar og var fyrst borið af konum af erlendum ættum. Andrea er kvenkynsmynd af nafninu Andreas. En Andreas er norræn mynd af gríska nafninu Andréas  eða Andrés. Nafnið er sótt í biblíuna og merkir: hugrakkur.

Ruth: Nafnið er ritmynd af Rut og var fyrst notað hér á síðari hluta 18. aldar. Rut er biblíunafn og var Rut móabítísk kona sem fylgdi Naomi tengdamóður sinni til Betlehem. Hún gekk síðar að eiga Bóas og varð ættmóðir Davíðs. Samkvæmt bókinni er merking nafnsins óviss, en ef maður googlar, þá kemur fram að nafnið merkir ,,Beloved”.

María: Var ekki notað í þessari ritmynd fyrr en líða tók á 18. öld. Nafnið varð fljótt vinsælt og algengt.  Það er biblíunafn þar sem það tengist auðvitað Maríu mey. En María varð til fyrir misskilning úr eldri gerð Mariam. Mariam er arameisk hliðarmynd af hebreska nafninu Miriam. Samkvæmt bókinni er merking nafnsins óviss. En Miriam merkir hin fagra. Ef maður googlar nafnið þá kemur fram að þýðir ,,star of the sea”.

Þrá: Einni stúlku var gefið þetta nafn á áratugnum 1931-1940 og tvær konur voru skráðar í þjóðskrá 1989. Nafnið merki: löngun, eftirvænting.