Archive for May, 2009
frægð og frami
May 19th
Það er búið að vera alveg yndislegt síðustu daga, veðrið er bara æði. Við erum eiginlega bara búnar að vera út í göngutúrum og njóta veðurblíðunnar.
Á sunnudaginn þá fórum við mæðgur í göngutúr með Gefjunni. Kötturinn er þvílíkt hugaður og ætlaði að ráðast á labradorhund sem við mættum, en ég náði að taka hana upp áður en hún réðst á trýnið hundinum. Göngutúrinn endaði í efstuhlíðinni en Gísli var þar að myndast við að bóna bílinn, bíllinn orðinn glæsilegur. Gefjunni fannst þvílíkt gaman að elta hunangsflugurnar, soldið erfitt samt í ól. Anna amma og Valdi afi vorkenndu henni að vera í svona stuttri ól þannig að snúrubandið var tekið niður og lengd í ólinni hjá kisu. Kisa ánægð með það en tókst að flækja sig nokkrum sinnum. Þegar við komum heim þá var Gefjun svo þreytt eftir heilan dag í útiveru að hún svaf til miðnættis.. haggaðist ekki.
Auðvitað verður að segja frá júrókvöldinu. Allir ánægðir með árangurinn hjá Jóhönnu Guðrúnu. Andrea hélt með tyrkjum og finnum en var rosa ánægð með framlag Íslands. Hún söng með hástöfum og skemmti okkur öllum. María vildi auðvitað vera með í teitinu og tók bara nokkra orkublunda yfir kvöldið svo hún gæti nú fylgst með.
Í gær fórum við María í heimsókn í hlíðarnar til þeirra Aisté og Amelíu. Skelltum okkur svo í göngutúr niðrí miðbæ og það var bara æðislega gaman. María svaf allan tíman en Amelía vildi fylgjast með og vakti svo til allan tíman. Þegar Andrea var búin á leikskólanum þá fórum við mæðgur og hittum E-bet inn í Kópavogi og tókum annan göngutúr. Andrea týndi fullt fullt af fíflum og þegar hún þefaði af þeim þá skellti hún nefinu alveg ofan í þá. Þannig hún varð ansi gul á nebbanum. Þegar við komum heim þá sagði ég henni að hún væri nú bara eins og sólin. Henni fannst það voða fyndið. Yfir kvöldmatnum snerist umræðan um frægð og frama. En Andrea tilkynnti það að hún vill verða fræg, að allir eigi að þekkja hana. Ég spurði hana hvernig fræg hún vildi verða. Færgur læknir, frægur dansari, frægur söngvari, frægur lögfræðingur eða hvað? hún var fljót að svara því. Færg eins og Páll Óskar og Jóhanna Guðrún. Þá kom spurningin, “hvernig verður maður frægur’” Það verður að segjast að það er ljómandi góð spurning. Sögðum henni að hún yrði bara að leggja hart að sér, vera dugleg og ekki gefast upp.
jæja best að koma sér að verki svo hægt sé að fara út í sólina.
júróvisjón vika
May 13th
júróvisjónið byrjaði í gær og var Andrea búin að bíða eftir því með óþreyju. Hún pantaði hamborgara í matinn og keypti Gísli handa henni smá gúmmí til að hafa með keppninni. En skvísan var svo spennt að hún steingleymdi því en bað um sleikipinna
Hún skemmti sér k0nunglega og hafði alveg skoðun á lögunum. Hún var alveg viss um að Belgía (Elvis gaurinn) myndi tapa, henni fannst Hvíta Rússland leiðinlegt en það hindraði hana ekki í að dansa við lagið. Hún var ánægð með tyrkina, rúmena og finnana. Hún kunni meira að segja viðlagið við finnska lagið og söng með hástöfum. Hún fékk auðvitað að kjósa og var smá spælt yfir að mega ekki kjósa hana Jóhönnu Guðrúnu en kaus þess í stað Tyrkland og Finnland. Frökenin var svo upptjúnuð eftir keppnina að hún ætlaði aldrei að sofna og var því frekar úrill í morgun
Hún reyndi samt sitt besta til að vera prúð svo hún gæti nú fengið að horfa á júróvisjón aftur á fimmtudaginn. Henni finnst svo óþægilegt þegar það er mikil birta frammi á morgnanna, morgunsólin skín inn um eldhúsgluggann hjá okkur… hún fór fram á gang, ætlaði að athuga hvort það væri ekki mynd af Jóhönnu Guðrúnu í fréttablaðinu… en stoppaði í ganginu vegna of mikillar birtu og fann slökkvarann. Ætlaði að slökkva ljósið, en það var ekki kveikt heldur var þetta bara morgunsólin. Það væri nú þægilegt að eiga við hana á morgnanna ef hægt væri að slökkva á sólinni rétt á meðan hún er að vakna. En það eru víst draumórar.
Af Maríu Þrá er það að frétta að kvefið virðist vera að minnka 7-9-13. Hún er að fara á morgun í 3ja mánaða sprautuna og verður hlustuð í leiðinni. Andrea Ruth er aftur á móti frekar mikið kvefuð, með ljótan hósta og mikið nasakvef. Það fer vonandi að lagast, annars er einnig nýtt hjá Andreu Ruth og það er að hana klæjar í blóðinu…. veit ekki alveg hvernig á að leysa það mál. Held að það sé komið vegna þess að hana langar í mixtúruna sem hún fékk hjá húðsjúkdómalækninum, en hún er kláðastillandi og ansi bragðgóð. Fékk hana við exeminu en á bara að taka hana inn þegar exemið er það slæmt að hana klæjar mikið í það svo hún sé ekki að klóra sér á nóttinni.
skilaboð