Hvítasunnuhelgin

Við fórum til eyja yfir hvítasunnuna, því amma átti afmæli á hvítasunnudag, hún varð 88 ára en ekki 89 ára. Smá mistök í talningunni hjá mér.  Við fengum óvæntan gest með okkur til eyja, nefnilega hana Rósu. En Rósa er gíraffi sem á heima á leikskóladeildinni hennar Andreu og er hún að kenna krökkunum á deildinni að bera ábyrgð. Síðan fær hún að fara í helgarheimsóknir með krökkunum og þessa helgi átti hún að fara heim með Andreu. Gefjun kom einnig með okkur til eyja og gekk það bara ljómandi vel, hún ældi ekkert í herjólfi á leiðinni til eyja en það voru nokkrar áhyggjur um það, þar sem veltingur var frekar mikill og við náðum ekki á dýraspítalann í tæka tið til að ná í sjóveikislyf handa henni.

Það var bara ljómandi fínt í eyjum, fengum æðislegt veður fyrir utan smá rigningarskúr á laugardeginum. En þá vorum við niðrí fjöru þegar byrjaði að rigna og urðum að hlaupa inn í bíl til að verða ekki gegndrepa. Það var fjölskylduhelgi í eyjum þessa helgi og voru einhverjar uppákomur, við reyndar nýttum okkur  bara það að það var frítt á náttúrugripasafnið og í sund. María Þrá skemmti sér vel í sundinu, enda finnst henni voða gaman í baði… soldið lík mömmu sinni :) Hún er frekar fyndin með sundhettuna sína. Við ætlum að ná mynd af henni með hettuna því það er ansi erfitt að lýsa því hvernig hún er með hettuna, nema að hún verður enn meira lík henni Öddu ömmu sinni þegar hún er með hana.

Á sunnudeginum var afmælisveislan, það var mjög gaman að hitta alla og gömlu konuna. Hún var nú ansi hress þó hún vissi ekki alveg hver ætti hvaða börn eða hvað börnin hétu, hvort sem það voru barnabörnin eða langömmubörnin. Hún var heldur ekki alveg viss hvort hún ætti heima á elliheimilinu og hvort hún myndi rata á herbergið sitt og þannig fram eftir götum. En þetta var mjög skemmtilegt. Andrea spurði reyndar afhverju við stoppuðum alltaf bara 2 daga í eyjum. ehemm… en jæja við mæðgur munum stoppa lengur í sumar þegar Gísli fer til Möltu að vinna.

Við fórum síðan heim á mánudeginum og eftir að hafa gengið lauslega frá öllu þá var komið að næstu afmælisveislu, en hún Svandís var að halda upp á 2ja ára afmælið sitt.

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.

Comments are closed.