Archive for July, 2009

júlí

Þá er júlí að verða búinn og ansi langt síðan við settum eitthvað hérna inn. Það er allt búið að vera frekar rólegt hérna á Þrastarásnum. Gísli kom heim frá Möltu og vorum við mæðgurnar ofboðslega ánægðar með að fá hann heim.

Andrea Ruth fór á 2ja vikna sundnámskeið og stóð hún sig mjög vel. Hún er búin að læra alveg helling, er orðin alveg örugg með að fara í kaf, syndir í kafi, gerir höfrunahopp og lærði skriðsund. Ótrúlega dugleg. Síðasta daginn fengu foreldrar að horfa á og það var mjög gaman að sjá hversu mikið hún hefur lært.

María Þrá dafnar mjög vel, hún fer út um alla íbúð á maganum, reyndar aftur á bak en það er sama. Hún er ekki lengi að koma sér af leikteppinu og fer í “göngutúra” um íbúðina. Hún er farin að fá smá graut. Fær ekki mikið bara 6-7 skeiðar á kvöldin. Ég ákvað að byrja á því þar sem það komu tvær nætur í röð þar sem hún var að vakna á klst. fresti.  Þessa 11 daga sem hún hefur fengið graut, hefur hún sofið alla nóttina fyrir utan einar 3 nætur. Hún er mjög svo hrifin af grautnum og vill helst aðstoða við að mata sig.  Hún er einnig orðin meira æst í að ná í Gefjunni og nýtur hvert tækifæri til að grípa fast í hana ef Gefjunn álpast það nálægt henni. Sem betur fer hefur Gefjunn ekki gert neitt í þessu, bíður bara róleg þangað til maður losar gripið. Við erum búin að setja saman tripp trapp stólinn hennar og hún tekur sig mjög vel út í honum. Nú er ekkert kvart í kvöldmatnum þar sem hún fær að sitja við eldhúsborðið með okkur.

Bluefin Tuna 80 pounds ( cirka 36 kg )

IMG_7234

IMG_7103

Myndir frá Möltu

Já sællll

nokkarar myndir frá möltu :) svona fyrst að maður er farin í facebook leyfi.

Gísli Malta