Í eyjum
Það er nú soldið langt síðan ég setti eitthvað hérna inn og ýmislegt líklega búið að gerast síðan. Það svona helsta er væntanlega það að Gísli er búin að vera á flakkinu. Fór til Luxemborgar að vinna og er núna í Möltu að vinna. Við mæðgur ákváðum því að skreppa til eyja. Það var reyndar aðeins tvísýnt með hvort við gætum farið til eyja. Andrea veiktist nefnilega, hún fékk slæma magapest. Ég hef bara aldrei séð hana áður með svona mikla verki. Hún stóð sig eins og hetja þegar læknirinn sendi hana í blóðprufu. Þetta var í annað sinn sem hún fer í þannig og þegar hún fór fyrst þá var hún svo lítil að hún man ekkert eftir því. Hún hreyfði sig ekki neitt og kveinkaði sér ekkert. Sagði mér reyndar svo þegar við vorum komnar fram að henni hefði þótt þetta vont og fékk tár í augun við upprifjunina. Það kom allt fínt út úr blóðprufunni, það var verið að ganga úr skuggum um að þetta væri ekki botnlanginn. Á þriðjudagskvöldinu var skvísan nokkuð hress þannig við ákváðum að halda planinu og fórum til eyja daginn eftir.
Það er bara búið að vera mjög fínt hérna, gott veður og heitt þrátt fyrir að það sé þoka. Það er goslokahátíð núna um helgina, þannig það er ýmislegt um að vera. Í dag var verið að heilsteikja naut og ýmsir eyjamenn með sýningar á handverkum sínum. Voða gaman. Á morgun verður síðan eitthvað um að vera fyrir börnin í bænum og síðan um kvöldið verður víst hörku djamm í Skvísusundi. En Andrea er búin að vera þvílíkt ánægð með lífið í eyjum, fór í dag í fjöruna með afa sínum, er búin að nota systkinapallinn, sem við fengum lánaðann á vagninn, mjög mikið. Alveg ólm í göngutúr en vill svo ekkert ganga, bara standa á pallinum… lúxus líf hjá henni og góð æfing fyrir mömmuna
| Print article | This entry was posted by gudrun on July 3, 2009 at 17:51, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. Both comments and pings are currently closed. |
Comments are closed.
skilaboð