komnar á fastalandið

Við mæðgur komum heim í gær.  Það ætlar að verða ansi mikið um veikindi hjá okkur í þessum mánuði. Andrea var veik áður en við fórum til eyja, María veikist í eyjum fékk handa-fóta og munnveiki en var samt hress losnaði alveg við hita og allt það. Núna er Andrea komin með hita, hann var ansi hár í nótt en virðist vera að lækka núna. Kannski það sé bara svona sólarhringsdæmi, alla vega er hún ekki komin með nein útbrot.

María Þrá var í 5 mánaða skoðun í gær. Skvísan er orðin heil 7 kg og 64,7 cm, næstum 6 cm á einum mánuði :) Hún er alveg þvílíkt dugleg, veltur sér fram og til baka. Hún kemst stundum í smá sjálfheldu á nóttunni, þegar hún er komin á magann og fattar ekki að velta sér til baka þegar hún er orðin þreytt að sofa á maganum, kallar þá bara á mömmu sína sem veltir henni og eftir nokkrar mínutur er skvísan komin aftur á magann.

Annars höfðum við það bara mjög gott í eyjum.  Sólveig Lind kenndi frænku sinni puttaprjón og er Andrea núna alveg á fullu að gera puttaprjón. Næst þegar við förum svona lengi þá verðum við að stíla inn á að pabbi sé í fríi og væri gaman að geta farið í söl.

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.

Comments are closed.