Archive for July, 2009

komnar á fastalandið

Við mæðgur komum heim í gær.  Það ætlar að verða ansi mikið um veikindi hjá okkur í þessum mánuði. Andrea var veik áður en við fórum til eyja, María veikist í eyjum fékk handa-fóta og munnveiki en var samt hress losnaði alveg við hita og allt það. Núna er Andrea komin með hita, hann var ansi hár í nótt en virðist vera að lækka núna. Kannski það sé bara svona sólarhringsdæmi, alla vega er hún ekki komin með nein útbrot.

María Þrá var í 5 mánaða skoðun í gær. Skvísan er orðin heil 7 kg og 64,7 cm, næstum 6 cm á einum mánuði :) Hún er alveg þvílíkt dugleg, veltur sér fram og til baka. Hún kemst stundum í smá sjálfheldu á nóttunni, þegar hún er komin á magann og fattar ekki að velta sér til baka þegar hún er orðin þreytt að sofa á maganum, kallar þá bara á mömmu sína sem veltir henni og eftir nokkrar mínutur er skvísan komin aftur á magann.

Annars höfðum við það bara mjög gott í eyjum.  Sólveig Lind kenndi frænku sinni puttaprjón og er Andrea núna alveg á fullu að gera puttaprjón. Næst þegar við förum svona lengi þá verðum við að stíla inn á að pabbi sé í fríi og væri gaman að geta farið í söl.

Í eyjum

Það er nú soldið langt síðan ég setti eitthvað hérna inn og ýmislegt líklega búið að gerast síðan. Það svona helsta er væntanlega það að Gísli er búin að vera á flakkinu. Fór til Luxemborgar að vinna og er núna í Möltu að vinna. Við mæðgur ákváðum því að skreppa til eyja. Það var reyndar aðeins tvísýnt með hvort við gætum farið til eyja. Andrea veiktist nefnilega, hún fékk slæma magapest. Ég hef bara aldrei séð hana áður með svona mikla verki. Hún stóð sig eins og hetja þegar læknirinn sendi hana í blóðprufu. Þetta var í annað sinn sem hún fer í þannig og þegar hún fór fyrst þá var hún svo lítil að hún man ekkert eftir því. Hún hreyfði sig ekki neitt og kveinkaði sér ekkert. Sagði mér reyndar svo þegar við vorum komnar fram að henni hefði þótt þetta vont og fékk tár í augun við upprifjunina. Það kom allt fínt út úr blóðprufunni, það var verið að ganga úr skuggum um að þetta væri ekki botnlanginn. Á þriðjudagskvöldinu var skvísan nokkuð hress þannig við ákváðum að halda planinu og fórum til eyja daginn eftir.

Það er bara búið að vera mjög fínt hérna, gott veður og heitt þrátt fyrir að það sé  þoka. Það er goslokahátíð núna um helgina, þannig það er ýmislegt um að vera. Í dag var verið að heilsteikja naut og ýmsir eyjamenn með sýningar á handverkum sínum. Voða gaman. Á morgun verður síðan eitthvað um að vera fyrir börnin í bænum og síðan um kvöldið  verður víst hörku djamm í Skvísusundi.  En Andrea er búin að vera þvílíkt ánægð með lífið í eyjum, fór í dag í fjöruna með afa sínum, er búin að nota systkinapallinn, sem við fengum lánaðann á vagninn, mjög mikið. Alveg ólm í göngutúr en vill svo ekkert ganga, bara standa á pallinum… lúxus líf hjá henni og góð æfing fyrir mömmuna :)