Við vorum í bústað í Hraunborgum síðustu viku. Það var ofboðslega næs, afslöppun, afslöppun og meiri afslöppun. María Þrá fékk að smakka í fyrsta sinn sætar kartöflur, svona í tilefni af 6 mánaða afmælinu. Henni þóttu þær ekkert góðar, reyndi næstu daga að gefa henni þær blandaðar í grautinn í mismiklu magni. En henni fannst þetta samt ekkert spes. Hún fékk líka að prófa banana, fannst hann betri en var ekki sólgin í hann. Henni finnst Hirsi grauturinn algjört nammi og spennist öll upp þegar hún sér matardiskinn sinn. Hún María er hörkudugleg, hún er næstum því farin að setjast upp, vantar bara pínu pons upp á það. Hún er samt ekki enn farinn að skríða áfram, ferðast enn um afturábak en fer upp á hnén og ruggar sér.

IMG_7662
Við héldum upp á afmælið mitt í bústaðnum. María gaf mér það í gjöf að sofa alveg til hálf tíu :) Andrea Ruth gaf mér trefil sem hún hafði puttaprjónað alveg sjálf. Hann var mjög flottur, bleikur og blár á litinn. Gísli, Andrea og María gáfu mér DG bol, ótrúlega flottur :) Við fórum síðan á Selfoss, þurftum að versla aðeins inn og sérstaklega bleyjur þar sem Maríu Þrá tókst að klára bleyjurnar fyrr en áætlað hafði verið og lendum við í smá púsli með hana á sunnudagskvöldinu. Hún auðvitað gat ekki gert okkur þann greiða að kúka ekki, en þetta hafði verið ansi hægðasamur dagur hjá henni. Eftir að við vorum búin að kaupa bleyjur fórum við í sund á Selfossi. Það var alveg yndislegt veður og æðislegt að slappa af í lauginni. María Þrá fékk að “prufa” barnavatnsrennubraut og fannst það mjög gaman. Andrea eyddi löngum tíma með pabba sínum í stóru lauginni við að kafa og synda. Þegar við komum aftur upp í bústað þá græjaði ég smá kaffi og við fengum okkur súkkulaðiköku með grænu kremi og perutertu. Andrea og Gísli sungu afmælissönginn fyrir mig :) Við toppuðum síðan daginn með því að grilla humar og skála í hvítvíni. Dagurinn var aldeilis frábær :)

Við  kíktum á markað á Borg, kallaðist Grimmsævintýri. Það var mjög gaman að sjá hvað fólkið í sveitinni er að vinna. Þar var það samankomið og var að selja handverk sín, grænmeti og fleira. Við smökkuðum á rabbabarakaramellu, það var furðulega gott miðað við að vera karamella búin til úr rabbabara. Við versluðum okkur skóhorn, mjög svo flott og Anna amma gaf Andreu jólasvein búin til úr steinum. Það var ágætlega gestkvæmt hjá okkur. Halldór og Ósk kíktu við, Anna amma og Valdi afi, Adda amma og Þór og síðan Elísabet Árný.

IMG_7760
Við fórum á Þingvelli, ætluðum að fara að veiða og förum búin að kaupa veiðileyfi og koma okkur fyrir í Vatnskoti þegar við uppgötvuðum að við vorum ekki með flotholt. Við reyndum að útbúa flotholt úr flöskutappa en það gekk ekki upp, eins og við var að búast. Í staðinn skoðuðum við okkur um á Þingvöllum og Andrea Ruth fékk að kasta krónum í peningagjá. Gísli sjarmeraði síðan afgreiðslustelpuna sem hafði selt honum veiðileyfið upp úr skónum og fékk hana til að breyta dagssetningunni á veiðileyfinu. Þannig daginn eftir var brunað á Selfoss og keypt flotholt, ormar og taska undir allt veiðidótið síðan var farið aftur á Þingvelli, Vatnskot og reynt að veiða. Andrea tók sig vel út við veiðiskapinn en fannst ekki gaman að við skyldum ekki ná að veiða neitt. Hún gafst upp á endanum og fór að príla í kringum vatnið og endaði auðvitað á því að renna út í. Hún blotnaði nú samt ekki svo mikið, bara upp fyrir ökkla. En þá var veiðiferðinni sjálf hætt og farið aftur í bústaðinn.

IMG_7638