Við skötuhjúin ákváðum í tilefni af þrítugsafmælum okkar að fara saman í helgarferð í stað þess að halda svaka veislu.  Stelpurnar voru í pössun, Andrea hjá Önnu ömmu og Valda afa en María Þrá hjá Elísubet. Við lögðum af stað austur á Hallormsstaði á föstudagsmorgni og ferðin var mjög skemmtileg. Ég sá t.d. jökulsárlón í fyrsta skipi og það ótrúlega magnað. Ekkert smá fallegt þarna og næst þá gefum við okkur tíma til að sigla um lónið. Við stoppuðum á nokkrum stöðum á leiðinni t.d. á Þverá, en Gísli var þar í sveit. Við keyrðum yfir Öxa og útsýnið þar er virkilega fallegt. við vorum síðan komin á Hallormsstaði um sexleytið. Kíktum á kofann sem við höfðum til umráða og fórum síðan á Egilsstaði að finna okkur kvöldmat. Okkur brá báðum mjög þegar við sáum Egilsstaði, við héltum bæði að bærinn væri mun stærri en hann er. Okkur var bent á að borða á Café Nilsen og gerðum við það, maturinn þar var ofboðslega góður.
IMG_7805

Á laugardeginum gengum við frá kofanum okkar, sem var við Hússtjórnunarskólann, og að Atlavík. Við skoðuðm trjáasafnið á leiðinni. Það er ótrúlega fallegt þarna við Lagarfljót og væri gaman að fara í Atlavík í útilegu. Við kíktum síðan á svona markað á Egilsstöðum áður en við héltum af stað til Borgarfjarðar – eystri. Það var ofboðslega gaman að fara þangað, akstursleiðin falleg og skemmtileg. Þorpið er ótrúlega krúttlegt. Við skoðuðum þar Kjarvalssafnið, álfaborg og fórum á kaffihúsið á staðnum. Þessi kall var svo vinsamlegur að vísa okkur leiðina þangað :)

IMG_7865

Um kvöldið var svaka skemmtun hjá bæjarbúum í bragganum við hliðiná sláturhúsinu. Við höfðum keypt okkur miða á það á föstudeginum. Í matinn var heilgrillað hreindýr með salati, nýjum kartöflum og sósu. Maturinn var mjög góður, verst að það var aðeins of lítið alla vega gátu ekki allir (200 manns) farið aftur og fengið ábót. Við sátum á borði með hjónum, Friðrik og Margrét og börnum þeirra, Birki og Ernu. Þau voru mjög almennileg og spjölluðum við alveg helling við þau. Það voru ýmis skemmtiatriði, aðallega söngur og var tekið vel undir af gestunum. Eftir skemmtunina þá keyrði Erna og vinkona hennar okkur upp í kofa, önnur keyrði bílinn okkar og hin elti. Áður en við héltum svo af stað í bæinn aftur þá kíktum við í smá kaffi til þeirra. Ég kannaðist svo við Margréti og hún við mig, við gátum samt engan vegin munað hvar við hefðum hist áður. Við fórum norðurleiðina heim, var eitthvað verið að plata okkur áður en við lögðum af stað að maður færi fljótari að fara hana, en svo er ekki. Maður er jafnlengi að keyra þetta og austurleiðin er mun skemmtilegri. Mæli með því að fólk fari þá leið sé það að fara á Egilstaði.

Af yndislegu stelpunum okkar er allt ljómandi að frétta. Andrea Ruth er byrjuð aftur í leikskólanum og er komin í drekahóp í leikskólanum. Hún bíður spennt eftir vetrinum því þá byrjar hún aftur í ballett og fer í söngnám. Verður nóg að gera hjá henni um helgar :)

6 mánaðaAndrea Ruth 6 mánaða

María Þrá er svakadugleg, hún er farin að skríða áfram, sitja og setjast upp. Það verður stutt í að hún fer hraðar um og þá er eins gott að hafa augun opin því henni finnst dótið hennar Andreu mjög spennandi. Hún er líka farin að borða meira yfir daginn, farin að vilja annað en hirsi graut þó hún sé ekki að kaupa kartöflurnar. Hún er farin að líka betur við gulræturnar og bananann en í gær fékk hún heimatilbúið sveskjumauk og henni fannst það alveg þvílíkt gott.

IMG_7922María Þrá 6 mánaða