Archive for August, 2009
Útilegan
Aug 7th
Við fórum í útilegu yfir verslunarmannahelgina. Það var lagt af stað í hádeginu á föstudeginum og enduðum við á Hellishólum. Við vorum í góðra vinahópi og skemmtum okkur konunglega. Þegar við mættum var ansi mikið af fólki á svæðinu en það var samt pláss fyrir okkur, um kvöldið komu síðan Bryndís og Gummi. Það var ýmislegt brallað, það var spilað kubbur, krikket eða krokket… man aldrei hvort það er. Það var skroppið í sund á Hvolsvelli á laugardeginum, þar var nú svo stappað að það var ekkert pláss í búningsklefanum og yfirtroðið í öllum heitu pottunum. Eftir sundið kíktum við á Skóga og skoðuðum Skógarfoss og gengum upp á fjallið. Á skógum var full rúta af ítölum og sjarmaði María Þrá þrjár ítalskar ömmur upp úr skónum. Þær voru einnig mjög hrifnar af Andreu Ruth. Ef Andrea er spurð hvað sé minnistæðast við Skóga, þá er það líklega konan sem hún sá æla. Greyið konan varð bílveik og Andreu fannst þetta mjög merkileg og var mikið að spá í þessu. Eftir skóga var haldið á tjaldsvæðið þar sem Andrea Ruth og Emilía fengu andlitsmálningu þæru breyttust í undurfögur fiðrildi. Sigrún og Anton komu síðan um kvöldmatarleytið. Eftir matinn var fóru flest allir á brekkusöng og varðeld. Guðrún varð eftir í tjaldbúðunum til að hlusta eftir yngstu kynslóðinni. Hafði það kósý með heitt kakó, nammi og skáldsögu í eyrunum. Þegar eldri börnin voru farin að sofa var ákveðið að kveikja smá varðeld í grillinu þeirra Jóns og Betu. Það varð ágætist skemmtun að fylgjast með Gísla safna eldiviði í eldinn. Hann sló í gegn með leatherman-inum sínum. Á sunnudeginum var liðið drifið í sund fyrir hádegi og var farið nú á Hellu í sund. Sundlaugin þar var mun betri en á Hvolsvelli og var hleypt inn í hollum svo nægt pláss væri fyrir alla í klefunum. Guðrún hrakfallabálkaðist aðeins í sundinu, hrundi næstum á hausinn í vatnsrennibrautinni þegar hún var að fara með Andreu í hana. Græddi góða marbletti á klafaskapnum. Að sundferðinni lokinni var haldið í Þakgil. Það var ótrúlega gaman, falleg leiðin þangað og mjög fallegt í Þakgili. Væri gaman að vera á tjaldstæðinu þar og ganga þarna um. Um kvöldmatarleytið var brunað af stað upp á Hellishóla til að geta borðað afmæliskvöldverð með Sigrunu, en hún varð þrítug á sunnudeginum
og í tilefni afmælisins var gerður varðeldur í grillinu okkar. Strákarnir höfðu keypt eldivið á Hvoldsvelli. Þetta varð hinn fínasti varðeldur og hélt á okkur hita fram eftir nóttu. Guðrúnu tókst að hrakfallabálkast meira og bekkurinn sem hún sat á í tjaldvagninum hrundi í gólfið þegar hún og Andrea voru að spila, þar græddi hún annan marblett. Seinna um kvöldið tókst henni að hella yfir sig glasi af rauðvíni. Var greinilega ekki hennar dagur
Á mánudeginum var síðan pakkað saman. Við fórum upp í bústað og vorum þar eina nótt. Það var ótrúlega gott að komast í sturtu og fá að sofa
Annars gekk allt ljómandi vel í útilegunni, fyrsta nóttin var soldið köld og varð Maríu kalt, hún fékk þá að fara ofan í svefnpokann hjá mömmu og hlýnaði við það. Hinar næturnar varð henni ekkert kalt.

skilaboð