Það hefur nú ýmislegt drifið á daga okkar hérna í þrastarásnum… aðallega veikindi þó. Gísli ætlaði að vera svaka myndarlegur og laga blessaðann vegginn inn í anddyri og búin að redda sér öllu sem þurfti í verkið. En þegar kom að því hjá honum að blanda efnunum saman þá fékk hann í bakið og hrundi niður. Mér brá ekkert smá þegar ég sá hann fara niður.  Hann tók því rólega alla síðustu viku og er núna allur að koma til.  Ég veiktist síðan fékk þessa hræðilegu kvefpest ásamt höfuðverk, beinverkjum og fleiru miður skemmtilegu. Andrea veiktist á þriðjudaginn, hiti og allur pakkinn. Hún er örlítið hressari núna. María er búin að vera kvefuð í heilan mánuð, rúmlega það. Nasakvefið er þó að minnka og hósti að taka við.  Þetta ástand á fjölskyldunni fer vonandi að líða hjá.

María Þrá er annars hörkudugleg, hún byrjaði að standa upp 12 september (7 mán. og viku gömul), þá vorum við í eyjum að hjálpa Gumma afa að flytja af búhamrinum.  Hún var örlitið á undan eldri systur sinni í þessu en Andrea Ruth stóð upp 7 mán og 2ja vikna. María er síðan farin að ganga meðfram. Tók fyrstu skrefin 27 sept. (7 mán. og 19 daga). Hún ýtir annað hvort dótakassanum sínum eða eldhússtól á undan sér. Andrea var aftur á móti þó orðin 8 mánaða og viku gömul þegar hún fór að ganga meðfram. Þannig þær eru á svona svipuðu róli systurnar.

María er dugleg að borða og fær núna 4 máltíðir á dag, hún er samt enn á brjósti. Hún er farin að borða hin ýmsu grænmetismauk og er farin að vilja kartöflur. Hún fékk að smakka smá pasta í gær og fannst það allt í lagi, hún var ekki eins hrifin af grjónagrautnum sem ég bjó til fyrir hana. En fannst weetabixið gott :) Henni líkar vel við brauð hvort sem það sé bara með smjöri eða kæfu. Hún er bara frekar sátt með þetta.

Andrea Ruth er byrjuð aftur í ballett og finnst mjög gaman þar. Hún er líka byrjuð í söngskóla Maríu Bjarkar og finnst það ótrúlega gaman. Ég fékk að heyra hana syngja í míkrafón um daginn og það ótrúlega ar flott hjá skvísunni :) Hún er mikið að spá í hvaða skóla hún muni fara í á næsta ári. Enda komin i skólahóp í leikskólanum. Við getum voðalítið svarað því með vissu þar sem fasteignakaup eru á hold í augnablikinu.

Ég þarf víst að nota tíman á meðan María sefur til að læra undir próf, væri samt alveg til í að sofa líka þar sem undanfarnar vikur hafa verið sérstaklega erfiðar. María sefur frekar illa og svo var Andrea líka að vakna í nótt með verki.

blurb frá gísla : ég verð bara alltaf að prófa allt :) ..www.robo.to /gisli