Þá eru allir á heimilinu orðnir hressir.. fyrir utan kvef hjá Maríu Þrá. Svo er bara að vona að það komi ekki annar flensufaraldur á heimilið, en við vorum að fá bréf frá leikskólanum hennar Andreu Ruthar í gær og er svínaflensan búin að skjóta niður þar. 3 staðfest tilfelli og eitt á deildinni hennar Andreu.
Gísli er búinn að laga anddyrið hjá okkur og nú þarf bara að spasla, pússa og mála. Það fer á verkefnalistann fyrir jólin. Væri reyndar alveg til í að mála alla íbúðina fyrir jólin. En spurning hvort maður hafi tíma í það.
María Þrá er orðin 8 mánaða, hún er að fara á morgun í skoðunina og það verður gaman að sjá hversu stór og þung hún er orðin. Matarlystin hennar er öll að komast í lag eftir veikindin. Hún er búin að fá að smakka kjöt og kjúkling. Finnst það ekkert spes gott, líklega áferðin sem er ekki að heilla hana. Hún er orðin frakkari í að ganga meðfram og er búin að læra að fara niður þegar hún stendur sem er fínt. Því hún getur sest þá sjálf þegar hún er orðin þreytt á að standa. Við töluðum við svefnráðgjafa í gær og gaf hún okkur smá ráðleggingar varðandi að láta Maríu sofa í rúminu sínu, en hún hefur ekki viljað að sofa í rúminu sínu núna í frekar langan tíma. Við byrjum bara hægt, fyrst að venja hana af því að sofna á brjóstinu og svo um helgina mun Gísli sjá um hana.
Andrea Ruth er búin að uppgötva að það er mjög spennandi að sofa inn í stofu. Nú vill hún sofa þar til að æfa sig áður en hún fær nýtt herbergi, sem verður samt líklega ekki í bráð. Hún er búin að fá að sofa í sófanum þrisvar sinnum og ætlar að fá að halda því áfram eitthvað. það er svo sem fínt á meðan við erum að díla við Maríu. Hún er búin að eiga nokkrar snildar setningar undanfarið og er ein af þeim þessi: “vá!!! hvað hann er með stórt nef, það nær alla leið upp á enni.” En þetta kom þegar hún sá auglýsingu fyrir myndina “Race to witch mountain”
Rosalega er þetta flott útlit á síðunni ykkar. Gott að heyra að öllum líður vel byðjum að heylsa í bili