Þá er nóvember að líða og jólaljósin að hoppa upp. Andrea Ruth er mjög svo spennt og finnst ótrúlega gaman að kalla “jólaljós” í hvert skipti sem hún sér jólaljós… sem undanfarna daga er orðið ansi mikið af. Hún bíður spennt eftir 1 des því þá setjum við upp ljósin hjá okkur.

Hún er alltaf jafnmælsk og vanalega og bara í gær kom upp úr þurru við matarborðið: “Mér finnst alþingi leiðinlegt.” Hún var spurð afhverju, þá kom “bara mér finnst alþingi leiðinlegt”.  og fyrir nokkrum dögum var hún að llita fyrir framan sjónvarpið og það eru auglýsingar í því og hún segir: “Það á aldrei að trúa auglýsingum.” Er spurð afhveru og svarið: “eins og í kringlunni, þá segir hún ,,kringlan komdu í heimsókn” en ekki ,,viltu koma í heimsókn”"

María Þrá er alltaf að stækka og verða duglegri. 18 nóvember kom loksins tönn, reyndar ekki ein heldur tvær! Hún er líka farin að myndast við að standa óstudd og nær að standa þannig í rúma hálfa mínutu áður en hún missir kjarkinn og sest niður. Ekkert smá dugleg.

svo er það alveg makalaust að loksins þegar María sefur ágætlega yfir nóttina (vaknar bara kl 2 og svo aftur upp undir morgun) að þá er sjómaðurinn á neðri hæðinni með dúndrandi partý. Öfunda Gísla yfir að hafa getað sofið þrátt fyrir tónlist. Andrea vaknaði en náði að sofna aftur mjög fljótt og María virtist ekki láta þetta á sig fá, s.s. pirraði bara mig.

Það er komið fullt af nýjum myndum inn á flickr……..

IMG_8513
Ástrós og Óli lánuðu okkur Wii og komu síðan og spiluðu með Gísla og Andreu. Andrea sýndi náttla snildartakta :)

IMG_8065