klifur, spurningar og motta
þá er mars genginn í garð og báðar stelpurnar okkar stækka og stækka. Andrea er að taka einhvern vaxtakipp því skvísan borðar á við tvö. Það er ótrúlegt hvað mikið magn af mat er að fara ofan í hana. Hún er líka ótrúlega fróðleiksfús og spyr og spyr og spyr svo meira. Verst að oft eru þetta spurningar sem er mjög erfitt að svara, ég er ekki bara að tala um spurningar eins og “afhverju er himinninn blár?” þær koma í og með hinum spurningunum.

María Þrá er ekki mikið að spyrja þessa dagana, en hún er komin með klifuræði og prílar upp á barnastólana, tripp trapp stólana og reyndar bara allt sem hún mögulega getur stigið upp á, það stígur hún upp á. Henni finnst einnig mjög gaman að ýta á takkana á uppþvottavélinni og að “raða” í uppþvottavélina. Fikta í tökkunum á ofninum og talvan er náttla bara æðisgengin!!! Hún er öll að hressast eftir RS vírusinn, en hún var ansi slöpp af honum. Á morgun er svo stór dagur hjá henni, þar sem hún er að fara að byrja í aðlögun hjá Ollu dagmömmu.
Brúðkaupsundirbúningurinn gengur hægt en gengur þó. Mörg horn sem þarf að líta í. Það er bara svo mikið um að vera hjá okkur, bæði vinna, skóli og húsnæðisleit. Það er auðvitað allt á hold á fasteignamarkaðnum enda ekki við öðru að búast þegar ástandið er svona.
Gísli er að taka þátt í mottumars og hvet ég alla til að fara inn á karlmenn og krabbamein og heita á hann. Hann verður örugglega bara flottur með mottuna
| Print article | This entry was posted by gudrun on March 7, 2010 at 10:15, and is filed under Fréttir. Follow any responses to this post through RSS 2.0. You can leave a response or trackback from your own site. |


about 4 months ago
eðal systur þarna á ferð og auðvitað fjölskyldan í heild. Gangi ykkur vel að svara þessum spurningum því þær geta verið svakalega skemmtilegar stundum.