» gudrun

Minning
Ég er búin að vera að koma mér í að skrifa smá minningarorð um Jón Sævar, en hef einhvern vegin ekki getað komið mér í það. Nú eru liðnir fjórir mánuðir síðan hann dó og það er enn sárt að hugsa til þess að hann sé farinn.  Ég man eftir því þegar mamma sagði mér að hún hefði kannski góðar fréttir að færa mér, þá lá ég inni á spítalanum í eyjum og var nýkomin úr aðgerð á ökklanum, hún vildi ekki segja mér hvaða góðu fréttir það væru. Þegar ég kom heim þá sagði mamma mér að það væri möguleiki á því að hún væri ólétt og ég var svo kát, enda búin að suða um systkini svo lengi. Stuttu eftir þetta fórum við til Ísafjarðar að vinna í bústaðnum sem að mamma og Solla frænka höfðu keypt og þá fékk mamma það staðfest að hún væri ólétt. Ég var ótrúlega spennt og ánægð, hlakkaði þvílíkt til að verða stóra systir. Hann fæddist 11 febrúar 1992 í Reykjavík, ég var pínu fúl yfir að hafa ekki mátt fara með mömmu og pabba til Reykjavíkur, en mamma þurfti að liggja á kvennadeildinni einhverja daga áður en hún átti, ég var hjá Sollu frænku á meðan. Þannig ég sá ekki bróðir minn fyrr en einhverjum dögum eftir að hann fæddist. Hann var ótrúlega lítill   Hann stækkaði nú samt fljótt og áður en maður vissi af var hann farinn að tæta til í herberginu mínu, hann komst einhvern tíman í snyrtidótið mitt og gjörsamlega rústaði því, mætti fram ansi skrautlegur í framan.

Hann var alltaf að spá í hlutunum og einu sinni vorum við að fara upp í Goðahraun að versla eitthvað fyrir mömmu, man ekki hvað hann var gamall og hann var búinn að vera mjög hugsi stóran part af leiðinni, þegar hann allt í einu sagði “Gunna, hvað þýðir Vá?” ég reyndi að svara honum eins vel og ég gat. Hann hafði ótrúlega gaman af bókum og tónlist mjög snemma. Man að hann var alltaf með eggjaskerarann hennar mömmu og notaði hann sem gítar.

Sumarið áður en ég flutti í hafnarfjörð þá var ég í sveit á skeiðunum og Jón Sævar kom í heimsókn þangað til mín, var hjá mér í viku.  En hann var 5 ára þegar  ég flutti í fjörðinn  og eftir það sáumst við ekki það mikið. Ég hafði ekki  mikinn pening á milli handanna og gat ekki ferðast mikið til eyja á meðan ég var í skólanum. En kom náttla heim um jólin og á sumrin. Þær minningar sem eru hvað minnistæðastar eftir að ég flutti eru þær  t.d. þegar ég kom til eyja, man reyndar ekki hvort það var yfir allt sumarið eða hvort það var bara yfir helgi. En ég var á lödunni minni og við Jón Sævar fórum í smá bíltúr, ætli hann hafi ekki verið 6-7ára. Við stoppuðum inn í dal hjá gamla golfskálanum og ég sagði honum draugasöguna sem okkur hafði alltaf verið sagt í skátunum. Hann spurði síðan hvort hann mætti prufa að keyra bílinn.  Hefði alls ekki átt að segja já, en ég gerði það. Hann settist í bílstjórasætið, og hann keyrði örstuttan spöl. Hann steig bensínið í botn um leið og hann sleppti kúplingunni þannig bílinn skaust einhvern vegin af stað. Síðan var það í eitt skiptið að hann og Þorgils Árni voru búnir að búa til kassabíl, ég settist í kassabílinn og hann dró mig út um allan búhamarinn. Hann var mjög svo skemmtilegur krakki, alltaf stutt í hláturinn og hann var ótrúlega góður drengur. Eitt sinn var hann í sundferðalagi hérna upp á landi og mamma hringdi í mig, þar sem að hann var búinn með allan vasapeninginn sinn og þau áttu eftir að fara í bíó krakkarnir. Hún bað mig að hitta á hann og láta hann hafa smá pening. Ég hitti á hann og hina krakkana í kringlunni og þá hafði hann eytt síðustu peningunum sínum í að kaupa eyrnalokka og hálsmen handa systur sinni   Við áttum líka góða stund þegar við keyrðum saman til Akureyrar, þegar ég var að fara að útskrifast úr háskólanum.

Við áttum margar góðar stundir saman, hefði alveg viljað að þær hefðu verið fleiri. En svona er þetta 18 ára gamall unglingur vill víst lítið hanga með 5 ára gömlum bróður sínum og 17 ára unglingur vill víst lítið hanga mikið með þrítugri systur sinni sem á það til að tuða og siða hann til eins og þriðja foreldrið.

Minningar síða

Basil saves the day
Andrea Ruth er með lausa tönn, hún hefur verið laus í soldið langan tíma því hún datt á flísar og við það losnaði tönnin. En núna er tönnin s.s. mikið meira laus og Andrea er mjög montin með það og segir öllum að hún sé með lausa tönn, fólk fær að heyra það nokkrum sinnum. Hún finnur samt til og vill lítið jugast í tönninni og helst borða eitthvað sem þarf ekki að tyggja mikið. Hún er svo mikill snillingur.  Í gærkvöldi lágum við mæðgurnar upp í rúmi og vorum að lesa ævintýrið um Basil og Rottigan, María getur ekki látið gleraugun hennar Andreu vera, þau eru svo flott á litin og svona, gaman að rífa í þau. Reyndar vill María að enginn sé með gleraugu, hún sér um að rífa gleraugun af manni og knúsar mann svo. Hún er ekkert að leika með gleraugun vill bara ekki að þau séu á nefinu á manni. En já ég sagði Andreu bara að taka af sér gleraugun þá myndum við losna við þessa truflun og gætum séð hvort að Basil og Dr. Hotson myndu ekki bjarga henni Ólafíu. Við héltum áfram að lesa og þá tók María upp á því að babbla og benta á myndir í bókinni bæði með puttunum og tásunum.  Það gekk þannig í dágóðan tíma og ekki á meðan var greyið Ólafía fangi hjá Rottigan. Eftir nokkrar bls þá gafst Andrea upp og spurði svo innilega “mamma, afhverju getur hún ekki bara farið?” Ég spurði hana hvert hún ætti að fara, og þá hikaði Andrea í smá stund og hvíslaði svo “bara fram í rúmið”. Það varð ekkert úr því og Ólafía greyið þurfti að bíða björgunar frá Basil fram á næsta kvöld.

klifur, spurningar og motta
þá er mars genginn í garð og báðar stelpurnar okkar stækka og stækka. Andrea  er að taka einhvern vaxtakipp því skvísan borðar á við tvö. Það er ótrúlegt hvað mikið magn af mat er að fara ofan í hana. Hún er líka ótrúlega fróðleiksfús og spyr og spyr og spyr svo meira. Verst að oft eru þetta spurningar sem er mjög erfitt að svara, ég er ekki bara að tala um spurningar eins og “afhverju er himinninn blár?” þær koma í og með hinum spurningunum.

María Þrá er ekki mikið að spyrja þessa dagana, en hún er komin með klifuræði og prílar upp á barnastólana, tripp trapp stólana og reyndar bara allt sem hún mögulega getur stigið upp á, það stígur hún upp á. Henni finnst einnig mjög gaman að ýta á takkana á uppþvottavélinni og að “raða” í uppþvottavélina. Fikta í tökkunum á ofninum og talvan er náttla bara æðisgengin!!! Hún er öll að hressast eftir RS vírusinn, en hún var ansi slöpp af honum. Á morgun er svo stór dagur hjá henni, þar sem hún er að fara að byrja í aðlögun hjá Ollu dagmömmu.

Brúðkaupsundirbúningurinn gengur hægt en gengur þó. Mörg horn sem þarf að líta í. Það er bara svo mikið um að vera hjá okkur, bæði vinna, skóli og húsnæðisleit. Það er auðvitað allt á hold á fasteignamarkaðnum enda ekki við öðru að búast þegar ástandið er svona.

Gísli er að taka þátt í mottumars og hvet ég alla til að fara inn á karlmenn og krabbamein og heita á hann. Hann verður örugglega bara flottur með mottuna

aðal afmælisvikan liðin.
Þá er líklega mesta afmælisvika ársins liðin.  Við héltum upp á afmæli stelpnanna saman fyrir fjölskylduna síðasta sunnudag (7.feb). Það gekk nú bara ágætlega þrátt fyrir þrengslin á heimilinu. María Þrá smakkaði köku var ekkert sérstaklega hrifin af henni. Hún hafði heldur ekki mikinn áhuga á að opna pakkana, vildi frekar naga þá. Hrafnkell var mjög duglegur að aðstoða hana við að opna þá. Andrea Ruth var líka ánægð með daginn, lítur samt á þann dag meira sem afmælið hennar Maríu en sitt. En hún var voða ánægð með barbíe kökuna sína sem var dressuð upp í fríðu búning. Hún var líka í skýjunum með allar gjafirnar og þá sérstaklega pennaveskið sem María gaf henni. Á föstudaginn (12.feb) átti Andrea svo afmæli. Við gáfum henni auka afmælisgjöf þá um morguninn, en hún var nú smá stund að taka eftir henni en var síðan voða kát og hefur sofið með gjöfina upp í rúmi hjá sér síðan. En hún fékk s.s. skólatösku!! Ótrúlegt að hún sé að fara að byrja í skóla í haust. Hún fékk einmitt svona lestrarbók í afmælisgjöf og hefur verið að lesa 2 bls í henni á hverju kvöldi síðan, gengur ofboðslega vel hjá henni. Hún fékk síðan að velja kvöldmatinn og valdi hún að fara á Metro. Hún var mjög ánægð með barnaboxið sitt en okkur Gísla fannst þetta vera frekar óætur matur, meira að segja gulræturnar sem ég fékk mér í staðinn fyrir franskar voru mjög misjafnar.  Hún bauð síðan vinum sínum að koma í afmæli í ævintýralandi Smáralindar í dag. Það var sko búningaafmæli og þær voru alveg 3 skellibjöllur í boðinu!! Ekkert smá flottar skvísurnar, drengirnir í árgangnum hennar voru reyndar ekki að nenna að klæða sig svona upp. En það byrjar greinilega snemma hjá stelpunum að ráðskast með þá, þeim var alveg skipað slatta fyrir af stelpunum.  Þetta lukkaðist allt ljómandi vel og mjög sniðugt að halda afmæli þarna, sérstaklega þar sem maður hefur ekki pláss á heimilinu.

En það voru víst ekki bara skvísurnar okkar sem áttu afmæli í vikunni. Það vildi svo skemmtilega til að Yrja og Ronja voru á landinu og þær eiga afmæli einmit 12 feb líka og buðu þær Andreu í veislu á fimmtudaginn, Arndís vinkona hennar af leikskólanum á líka afmæli 12 feb og var hennar afmæli haldið í gær. Síðan má náttla ekki gleyma Jóni Sævari pilturinn loksins orðin sjálfráða og fjárráða, s.s. varð 18 ára  11 feb… uhmmm ég er s.s. orðin frekar gömul og auðvitað hún E-bet vinkona varð tuttugu-og-ellefu ára þann 6 feb. Þannig það er alltaf mikið að gera í byrjun febrúar.

Fyrir utan allt afmælisstúss í vikunni, þá gengur allt bara vel. Náði báðum prófunum sem ég tók í janúar og er því búin með eina önn í mastersnáminu og svo er slatti að gera í vinnunni.

Tennur og Alþingi
Þá er nóvember að líða og jólaljósin að hoppa upp. Andrea Ruth er mjög svo spennt og finnst ótrúlega gaman að kalla “jólaljós” í hvert skipti sem hún sér jólaljós… sem undanfarna daga er orðið ansi mikið af. Hún bíður spennt eftir 1 des því þá setjum við upp ljósin hjá okkur.

Hún er alltaf jafnmælsk og vanalega og bara í gær kom upp úr þurru við matarborðið: “Mér finnst alþingi leiðinlegt.” Hún var spurð afhverju, þá kom “bara mér finnst alþingi leiðinlegt”.  og fyrir nokkrum dögum var hún að llita fyrir framan sjónvarpið og það eru auglýsingar í því og hún segir: “Það á aldrei að trúa auglýsingum.” Er spurð afhveru og svarið: “eins og í kringlunni, þá segir hún ,,kringlan komdu í heimsókn” en ekki ,,viltu koma í heimsókn”"

María Þrá er alltaf að stækka og verða duglegri. 18 nóvember kom loksins tönn, reyndar ekki ein heldur tvær! Hún er líka farin að myndast við að standa óstudd og nær að standa þannig í rúma hálfa mínutu áður en hún missir kjarkinn og sest niður. Ekkert smá dugleg.

svo er það alveg makalaust að loksins þegar María sefur ágætlega yfir nóttina (vaknar bara kl 2 og svo aftur upp undir morgun) að þá er sjómaðurinn á neðri hæðinni með dúndrandi partý. Öfunda Gísla yfir að hafa getað sofið þrátt fyrir tónlist. Andrea vaknaði en náði að sofna aftur mjög fljótt og María virtist ekki láta þetta á sig fá, s.s. pirraði bara mig.

Það er komið fullt af nýjum myndum inn á flickr……..

Ástrós og Óli lánuðu okkur Wii og komu síðan og spiluðu með Gísla og Andreu. Andrea sýndi náttla snildartakta

Nóvember
Þá er nóvember genginn í garð.  Ég var í lokaprófum í byrjun mánaðarins, það var frekar strembinn tími, þar sem María var mikið í pössun svo ég gæti lært. Síðan prófin kláruðust hefur hún verið mikið að passa upp á mömmu sína. Hún stækkar og stækkar og er orðin 9 mánaða, ekkert smá fljótt að liða. Hún er búin að ná betri tökum á að nota hinu ýmsu hluti sem göngugrind, en hefur ekki náð eins góðum tökum á því að sofa í rúminu sínu. Það gengur brösulega og hefur hún erft þrjóskuna okkar Gísla sem gerir þetta enn erfiðara.  30. október sagði hún “babb-ba” og meinti pabbi.  Hún er einnig farin að segja “mamma” og svo segir hún “namm”. Það getur verið mjög fyndið því nýjasta hjá henni er að reyna að stinga upp í mann dótinu sem hún heldur á og segja “namm”.  Mjög svo góð að gefa manni að smakka á dótinu sínu. Hún er alltaf jafn hrifin af Andreu og ljómar öll þegar hún sér hana. Hún skilur þó ekki leikinn sem Andrea er mest í með henni, en hann felst í því að “njósna” um Maríu og passa að María sjái sig ekki. Hún er dugleg að borða og er farin að borða ansi fjölbreytt, hún er búin að fá nautagúllas, nautahakk, lambakjöt, fisk og allt grænmeti. Henni finnst voða gaman að týna upp í sig cherios eða brauð. Hún á það til að koma með hina yndislegu svipi og hin furðulegustu hljóð.

Af Andreu Ruth er það að frétta að hún fór til Guðmundar, bæklunarlæknis um daginn. Hann er mjög ánægður með hana og finnst hendin hafa réttst aðeins meira til hægri og virðist vera alveg bein þegar hún er í hvíld. Hann er einnig ánægður með hvað saumarnir greru vel og hversu vel örin líta út. Þumallinn mætti vera meira út og talaði hann um að hægt væri að hafa í huga einhvern tíman í framtíðinni að strappa hann upp. Hún missir kraft í hendinni þeagr hún kreppir hnefa þar sem að þá dettur úlnliðurinn niður. Hún á að koma aftur eftir 6 mánuði. Ef Thomas kemur til landsins fyrir þann tíma, þá verður kallað á okkur og hún send til hans í skoðun.  Hun á síðan að byrja aftur í iðjuþjálfun og þurfum við að hafa samband við Elsu um að koma henni aftur í hana.  Skvísan fór síðan til augnlæknis í síðustu viku og lítur allt ljómandi vel út þar. Andrea var ekkert smá dugleg og þurfti ekki að nota blað til að benda á stafina sem hún sá, enda er hún farin að þekkja stafina. Þrátt fyrir að vera fjarsýnni á vinstra auga, þá sá hún ekki verr með því. Hún á því bara að halda áfram að vera með gleraugun og koma í eftirlit eftir ár.

Andrea er byrjuð að læra að lesa, reyndar er smá pása í því núna, þar sem hún var farin að vera pirruð ef við leiðréttum hana eða leiðbeindum. En henni gekk mjög vel og ruglast helst á sérhljóðunum. Hún er búin að eiga nokkrar snildarsetningar undanfarnar vikur, t.d. spurði hún hvort við ætluðum að hafa sebrahest í jólamatinn, hvort ísland væri á hvolfi. Síðan sagði hún mér að Valdi afi væri með svona svartar tennur af því þegar hann var lítill þá var ekki til nógu mikið af tannlæknurum. Hún spurði mig einnig um daginn, hvort ég kynni að teikna brjóst í peysu. Sagði að Nína kynni að teikna brjóst í peysu í gær kom hún svo heim með teikningu af stelpu sem var með brjóst og í peysu   Er ekki búin að vera nógu dugleg að hripa niður það sem hún hefur verið að segja en hún er ótrúlega fyndin stundum. Hana langar mjög að flyta líkt og restinni af familíunni, en hennar ástæða er sú að hana hlakkar svo til að geta leyft Heklu frænku að gista.

Svona rétt í lokin viljum við óska afmælisbörnum nóvembersmánaðar til hamingju með daginn sinn

Allir hressir
Þá eru allir á heimilinu orðnir hressir.. fyrir utan kvef hjá Maríu Þrá.  Svo er bara að vona að það komi ekki annar flensufaraldur á heimilið, en við vorum að fá bréf frá leikskólanum hennar Andreu Ruthar í gær og er svínaflensan búin að skjóta niður þar. 3 staðfest tilfelli og eitt á deildinni hennar Andreu.

Gísli er búinn að laga anddyrið hjá okkur og nú þarf bara að spasla, pússa og mála. Það fer á verkefnalistann fyrir jólin. Væri reyndar alveg til í að mála alla íbúðina fyrir jólin. En spurning hvort maður hafi tíma í það.

María Þrá er orðin 8 mánaða, hún er að fara á morgun í skoðunina og það verður gaman að sjá hversu stór og þung hún er orðin. Matarlystin hennar er öll að komast í lag eftir veikindin. Hún er búin að fá að smakka kjöt og kjúkling. Finnst það ekkert spes gott, líklega áferðin sem er ekki að heilla hana. Hún er orðin frakkari í að ganga meðfram og er búin að læra að fara niður þegar hún stendur sem er fínt. Því hún getur sest þá sjálf þegar hún er orðin þreytt á að standa. Við töluðum við svefnráðgjafa í gær  og gaf hún okkur smá ráðleggingar varðandi að láta Maríu sofa í rúminu sínu, en hún hefur ekki viljað að sofa í rúminu sínu núna í frekar langan tíma.  Við byrjum bara hægt, fyrst að venja hana af því að sofna á brjóstinu og svo um helgina mun Gísli sjá um hana.

Andrea Ruth er búin að uppgötva að það er mjög spennandi að sofa inn í stofu. Nú vill hún sofa þar til að æfa sig áður en hún fær nýtt herbergi, sem verður samt líklega ekki í bráð. Hún er búin að fá að sofa í sófanum þrisvar sinnum og ætlar að fá að halda því áfram eitthvað. það er svo sem fínt á meðan við erum að díla við Maríu. Hún er búin að eiga nokkrar snildar setningar undanfarið og er ein af þeim þessi: “vá!!! hvað hann er með stórt nef, það nær alla leið upp á enni.” En þetta kom þegar hún sá auglýsingu fyrir myndina “Race to witch mountain”

Fréttir frá Þrastarásnum
Það hefur nú ýmislegt drifið á daga okkar hérna í þrastarásnum… aðallega veikindi þó. Gísli ætlaði að vera svaka myndarlegur og laga blessaðann vegginn inn í anddyri og búin að redda sér öllu sem þurfti í verkið. En þegar kom að því hjá honum að blanda efnunum saman þá fékk hann í bakið og hrundi niður. Mér brá ekkert smá þegar ég sá hann fara niður.  Hann tók því rólega alla síðustu viku og er núna allur að koma til.  Ég veiktist síðan fékk þessa hræðilegu kvefpest ásamt höfuðverk, beinverkjum og fleiru miður skemmtilegu. Andrea veiktist á þriðjudaginn, hiti og allur pakkinn. Hún er örlítið hressari núna. María er búin að vera kvefuð í heilan mánuð, rúmlega það. Nasakvefið er þó að minnka og hósti að taka við.  Þetta ástand á fjölskyldunni fer vonandi að líða hjá.

María Þrá er annars hörkudugleg, hún byrjaði að standa upp 12 september (7 mán. og viku gömul), þá vorum við í eyjum að hjálpa Gumma afa að flytja af búhamrinum.  Hún var örlitið á undan eldri systur sinni í þessu en Andrea Ruth stóð upp 7 mán og 2ja vikna. María er síðan farin að ganga meðfram. Tók fyrstu skrefin 27 sept. (7 mán. og 19 daga). Hún ýtir annað hvort dótakassanum sínum eða eldhússtól á undan sér. Andrea var aftur á móti þó orðin 8 mánaða og viku gömul þegar hún fór að ganga meðfram. Þannig þær eru á svona svipuðu róli systurnar.

María er dugleg að borða og fær núna 4 máltíðir á dag, hún er samt enn á brjósti. Hún er farin að borða hin ýmsu grænmetismauk og er farin að vilja kartöflur. Hún fékk að smakka smá pasta í gær og fannst það allt í lagi, hún var ekki eins hrifin af grjónagrautnum sem ég bjó til fyrir hana. En fannst weetabixið gott   Henni líkar vel við brauð hvort sem það sé bara með smjöri eða kæfu. Hún er bara frekar sátt með þetta.

Andrea Ruth er byrjuð aftur í ballett og finnst mjög gaman þar. Hún er líka byrjuð í söngskóla Maríu Bjarkar og finnst það ótrúlega gaman. Ég fékk að heyra hana syngja í míkrafón um daginn og það ótrúlega ar flott hjá skvísunni   Hún er mikið að spá í hvaða skóla hún muni fara í á næsta ári. Enda komin i skólahóp í leikskólanum. Við getum voðalítið svarað því með vissu þar sem fasteignakaup eru á hold í augnablikinu.

Ég þarf víst að nota tíman á meðan María sefur til að læra undir próf, væri samt alveg til í að sofa líka þar sem undanfarnar vikur hafa verið sérstaklega erfiðar. María sefur frekar illa og svo var Andrea líka að vakna í nótt með verki.

blurb frá gísla : ég verð bara alltaf að prófa allt   ..www.robo.to /gisli

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="248" height="220" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://robo.to/swf/smirk.swf?href=http%3A%2F%2Frobo.to%2Fgisli&sName=SmirksController&fx=1&hideBlerb=0&target=_blank&loop=1&cURI=rtmp%3A%2F%2Frobo.to%2Fsmirk_ul&uuid=6856b885f52f761b366ac4dbdaa9806f10425b22&sURL=http%3A%2F%2Frobo.to%2Famf%2Fgateway" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="248" height="220" src="http://robo.to/swf/smirk.swf?href=http%3A%2F%2Frobo.to%2Fgisli&sName=SmirksController&fx=1&hideBlerb=0&target=_blank&loop=1&cURI=rtmp%3A%2F%2Frobo.to%2Fsmirk_ul&uuid=6856b885f52f761b366ac4dbdaa9806f10425b22&sURL=http%3A%2F%2Frobo.to%2Famf%2Fgateway" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

um rómantík og sveskjumauk
Við skötuhjúin ákváðum í tilefni af þrítugsafmælum okkar að fara saman í helgarferð í stað þess að halda svaka veislu.  Stelpurnar voru í pössun, Andrea hjá Önnu ömmu og Valda afa en María Þrá hjá Elísubet. Við lögðum af stað austur á Hallormsstaði á föstudagsmorgni og ferðin var mjög skemmtileg. Ég sá t.d. jökulsárlón í fyrsta skipi og það ótrúlega magnað. Ekkert smá fallegt þarna og næst þá gefum við okkur tíma til að sigla um lónið. Við stoppuðum á nokkrum stöðum á leiðinni t.d. á Þverá, en Gísli var þar í sveit. Við keyrðum yfir Öxa og útsýnið þar er virkilega fallegt. við vorum síðan komin á Hallormsstaði um sexleytið. Kíktum á kofann sem við höfðum til umráða og fórum síðan á Egilsstaði að finna okkur kvöldmat. Okkur brá báðum mjög þegar við sáum Egilsstaði, við héltum bæði að bærinn væri mun stærri en hann er. Okkur var bent á að borða á Café Nilsen og gerðum við það, maturinn þar var ofboðslega góður.

Á laugardeginum gengum við frá kofanum okkar, sem var við Hússtjórnunarskólann, og að Atlavík. Við skoðuðm trjáasafnið á leiðinni. Það er ótrúlega fallegt þarna við Lagarfljót og væri gaman að fara í Atlavík í útilegu. Við kíktum síðan á svona markað á Egilsstöðum áður en við héltum af stað til Borgarfjarðar – eystri. Það var ofboðslega gaman að fara þangað, akstursleiðin falleg og skemmtileg. Þorpið er ótrúlega krúttlegt. Við skoðuðum þar Kjarvalssafnið, álfaborg og fórum á kaffihúsið á staðnum. Þessi kall var svo vinsamlegur að vísa okkur leiðina þangað

Um kvöldið var svaka skemmtun hjá bæjarbúum í bragganum við hliðiná sláturhúsinu. Við höfðum keypt okkur miða á það á föstudeginum. Í matinn var heilgrillað hreindýr með salati, nýjum kartöflum og sósu. Maturinn var mjög góður, verst að það var aðeins of lítið alla vega gátu ekki allir (200 manns) farið aftur og fengið ábót. Við sátum á borði með hjónum, Friðrik og Margrét og börnum þeirra, Birki og Ernu. Þau voru mjög almennileg og spjölluðum við alveg helling við þau. Það voru ýmis skemmtiatriði, aðallega söngur og var tekið vel undir af gestunum. Eftir skemmtunina þá keyrði Erna og vinkona hennar okkur upp í kofa, önnur keyrði bílinn okkar og hin elti. Áður en við héltum svo af stað í bæinn aftur þá kíktum við í smá kaffi til þeirra. Ég kannaðist svo við Margréti og hún við mig, við gátum samt engan vegin munað hvar við hefðum hist áður. Við fórum norðurleiðina heim, var eitthvað verið að plata okkur áður en við lögðum af stað að maður færi fljótari að fara hana, en svo er ekki. Maður er jafnlengi að keyra þetta og austurleiðin er mun skemmtilegri. Mæli með því að fólk fari þá leið sé það að fara á Egilstaði.

Af yndislegu stelpunum okkar er allt ljómandi að frétta. Andrea Ruth er byrjuð aftur í leikskólanum og er komin í drekahóp í leikskólanum. Hún bíður spennt eftir vetrinum því þá byrjar hún aftur í ballett og fer í söngnám. Verður nóg að gera hjá henni um helgar

Andrea Ruth 6 mánaða

María Þrá er svakadugleg, hún er farin að skríða áfram, sitja og setjast upp. Það verður stutt í að hún fer hraðar um og þá er eins gott að hafa augun opin því henni finnst dótið hennar Andreu mjög spennandi. Hún er líka farin að borða meira yfir daginn, farin að vilja annað en hirsi graut þó hún sé ekki að kaupa kartöflurnar. Hún er farin að líka betur við gulræturnar og bananann en í gær fékk hún heimatilbúið sveskjumauk og henni fannst það alveg þvílíkt gott.

María Þrá 6 mánaða

Sumarbústaður 7-14 ágúst
Við vorum í bústað í Hraunborgum síðustu viku. Það var ofboðslega næs, afslöppun, afslöppun og meiri afslöppun. María Þrá fékk að smakka í fyrsta sinn sætar kartöflur, svona í tilefni af 6 mánaða afmælinu. Henni þóttu þær ekkert góðar, reyndi næstu daga að gefa henni þær blandaðar í grautinn í mismiklu magni. En henni fannst þetta samt ekkert spes. Hún fékk líka að prófa banana, fannst hann betri en var ekki sólgin í hann. Henni finnst Hirsi grauturinn algjört nammi og spennist öll upp þegar hún sér matardiskinn sinn. Hún María er hörkudugleg, hún er næstum því farin að setjast upp, vantar bara pínu pons upp á það. Hún er samt ekki enn farinn að skríða áfram, ferðast enn um afturábak en fer upp á hnén og ruggar sér.

Við héldum upp á afmælið mitt í bústaðnum. María gaf mér það í gjöf að sofa alveg til hálf tíu   Andrea Ruth gaf mér trefil sem hún hafði puttaprjónað alveg sjálf. Hann var mjög flottur, bleikur og blár á litinn. Gísli, Andrea og María gáfu mér DG bol, ótrúlega flottur   Við fórum síðan á Selfoss, þurftum að versla aðeins inn og sérstaklega bleyjur þar sem Maríu Þrá tókst að klára bleyjurnar fyrr en áætlað hafði verið og lendum við í smá púsli með hana á sunnudagskvöldinu. Hún auðvitað gat ekki gert okkur þann greiða að kúka ekki, en þetta hafði verið ansi hægðasamur dagur hjá henni. Eftir að við vorum búin að kaupa bleyjur fórum við í sund á Selfossi. Það var alveg yndislegt veður og æðislegt að slappa af í lauginni. María Þrá fékk að “prufa” barnavatnsrennubraut og fannst það mjög gaman. Andrea eyddi löngum tíma með pabba sínum í stóru lauginni við að kafa og synda. Þegar við komum aftur upp í bústað þá græjaði ég smá kaffi og við fengum okkur súkkulaðiköku með grænu kremi og perutertu. Andrea og Gísli sungu afmælissönginn fyrir mig   Við toppuðum síðan daginn með því að grilla humar og skála í hvítvíni. Dagurinn var aldeilis frábær

Við  kíktum á markað á Borg, kallaðist Grimmsævintýri. Það var mjög gaman að sjá hvað fólkið í sveitinni er að vinna. Þar var það samankomið og var að selja handverk sín, grænmeti og fleira. Við smökkuðum á rabbabarakaramellu, það var furðulega gott miðað við að vera karamella búin til úr rabbabara. Við versluðum okkur skóhorn, mjög svo flott og Anna amma gaf Andreu jólasvein búin til úr steinum. Það var ágætlega gestkvæmt hjá okkur. Halldór og Ósk kíktu við, Anna amma og Valdi afi, Adda amma og Þór og síðan Elísabet Árný.

Við fórum á Þingvelli, ætluðum að fara að veiða og förum búin að kaupa veiðileyfi og koma okkur fyrir í Vatnskoti þegar við uppgötvuðum að við vorum ekki með flotholt. Við reyndum að útbúa flotholt úr flöskutappa en það gekk ekki upp, eins og við var að búast. Í staðinn skoðuðum við okkur um á Þingvöllum og Andrea Ruth fékk að kasta krónum í peningagjá. Gísli sjarmeraði síðan afgreiðslustelpuna sem hafði selt honum veiðileyfið upp úr skónum og fékk hana til að breyta dagssetningunni á veiðileyfinu. Þannig daginn eftir var brunað á Selfoss og keypt flotholt, ormar og taska undir allt veiðidótið síðan var farið aftur á Þingvelli, Vatnskot og reynt að veiða. Andrea tók sig vel út við veiðiskapinn en fannst ekki gaman að við skyldum ekki ná að veiða neitt. Hún gafst upp á endanum og fór að príla í kringum vatnið og endaði auðvitað á því að renna út í. Hún blotnaði nú samt ekki svo mikið, bara upp fyrir ökkla. En þá var veiðiferðinni sjálf hætt og farið aftur í bústaðinn.