Vikan sem er að líða er búin að vera ansi viðburðarrík hjá okkur. Andrea var öll að hressast um helgina og ætluðum við að taka ákvörðun um það á mánudagsmorgninum hvort hún færi á leikskólann eða yrði hjá Önnu ömmu. Hún hóstaði soldið um nóttina þannig það var ákveðið að hún færi til ömmu. Hún var voðalega ánægð með það. En áður en hún komst þangað þá lendum við í smá vandræðum.
Ég vaknaði um nóttina við eitthvað píp, heyrði 2 píp.. vissi ekki hvað þetta var og var að hugsa um að vekja Gísla og láta hann athuga þetta.. en þar sem ég heyrði það ekki aftur, þá ákvað ég að þetta væri bara talvan inn í þvottarhúsi og að hún væri nú búin að slökkva á sér og fór aftur að sofa. Þegar Gísli fer svo fram úr um morguninn þá gengur hann á vegg… gasvegg!! Hann flýtir sér að opna útidyrahurðina, svalahurðina, stofugluggann og eldhúsgluggann (en það var pínu rifa á eldhúsglugganum). Þegar hann er inn í eldhúsi þar sem við geymum gaskútinn.. heyrir hann bara “hviss” hljóð. Hann kom svo inn í herbergi og lét mig vita hvað var að ske. Við létum Andreu vera inn í svefnherbergi og ég fór að velta fyrir mér hvort pípið sem ég hafði heyrt hefði verið í gasskynjaranum, við töldum það samt ólíklegt því hann hefði ekki átt að hætta að pípa.. nema hann hefði orðið batteríslaus eftir að hafa pípt tvisvar… jæja, ekki fundum við gasskynjarann.. hann var ekki á veggnum þar sem hann var upphaflega settur og ekki inn í skáp hjá kútnum.
-
Archives
- July 2011
- June 2011
- August 2010
- April 2010
- March 2010
- February 2010
- January 2010
- November 2009
- October 2009
- September 2009
- August 2009
- July 2009
- June 2009
- May 2009
- April 2009
- March 2009
- February 2009
- January 2009
- December 2008
- November 2008
- October 2008
- September 2008
- August 2008
- July 2008
- June 2008
- May 2008
- April 2008
- March 2008
- February 2008
- January 2008
- December 2007
- November 2007
- October 2007
- September 2007
- August 2007
- July 2007
- June 2007
- May 2007
- April 2007
- March 2007
- February 2007
- January 2007
- December 2006
- November 2006
- October 2006
- September 2006
- August 2006
- July 2006
- June 2006
- May 2006
- April 2006
- April 2005
- March 2005
- February 2005
- January 2005
- December 2004
- November 2004
- October 2004
- September 2004
- August 2004
- July 2004
- June 2004
- March 2004
- February 2004
- January 2004
- December 2003
- February 2001
-
Meta




