Andrea dró móður sína í þvílíkan göngutúr á laugardaginn
Hún vildi endilega fara í göngutúr á einhvern róló. Allt í lagi með það við lögðum af stað, ákváðum að stoppa í Efstuhlíðinni fyrst, heilsa upp á ömmu og Gísla sem var að þrífa bílinn. Andrea vísaði leiðina og rataði alveg heim til ömmu sinnar, var bara ekki alveg viss hvar hún átti að fara yfir götuna. Eftir að hafa fengið rúsínupakka í nesti og knúsað ömmu sína aðeins var ákveðið að halda förinni áfram. Hún vildi fara á rólóinn sem var hjá húsinu með bláa þakinu, þau fara víst þangað stundum í leikskólanum. Við byrjuðum á því að ganga langleiðina í leikskólann hennar, sem er innst í Setberginu, Hlíðarendi, og fórum síðan yfir götuna og yfir móann. Fundum brú til að komast yfir lækinn og svo lá leiðin áfram inn í Setbergið og upp á móti. Andrea vissi alveg hvernig átti að komast á rólóinn og skemmti sér konunglega í göngutúrnum. Fræðandi mig um hvaða tré væru geitungatré og hvað tré stingu. Jæja loksins komumst við á leiðarenda. Rólóinn var s.s. í hlíðinni ská fyrir neðan Klukkubergið!! Mér brá soldið þegar ég sá hversu langt við höfðum gengið en Andrea var hin kátasta og lék sér í kastalanum. Við röltuðum síðan til baka með viðkomu á öðrum róló. Gísli tók okkur svo upp í þegar við vorum svo til komnar aftur upp í Efstuhlíð.
Við útbjuggum einnig tvö skókassa til að setja í “jól í skókassa” verkefnið. Andrea valdi af kostgæfni hvað af fötunum sínum og dóti hún var tilbúin að gefa fátæku börnunum í Úkraníu. Nú þarf bara að fara með kassana til KFUM.
Heilsan mín var ekki upp á sitt besta um helgina.. þá aðallega svona seinni part dags og á kvöldin. Hef aldrei upplifað annan eins sársauka og á laugardagskvöldið þegar ég ætlaði að standa upp úr sófanum!! Brjósklosið þar á ferð að gera mér grikk. Lagaðist örlítið eftir að Gísli hjálpaði mér að teygja aðeins á bakinu og eftir að hafa gengið aðeins um íbúðina. Lá síðan það sem eftir var af kvöldinu á heitum bakstri.