finally..

jæja, loksins ætla ég að gefa mér tíma til að setja eitthvað hérna inn. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að við höfum ekki haft neinn tíma fyrir að setja inn fréttir af okkur.

Hérna er stutt frásögn af því helsta sem hefur gerst síðustu tvö mánuði.

Andrea losnaði við gifsið í lok október. Hún stóð sig eins og hetja í öllu þessu ferli. Hún byrjaði í Iðjuþjálfun hjá henni Elsu og gengur það mjög vel.  Það eru strax komin framför með hendina komnar hreyfingar sem ekki voru áður. Við erum þvílíkt ánægð með það.

Í nóvember byrjaði ég að vinna hjá Askar Capital, en það er nýr fjárfestingarbanki. Ég losnaði samt ekki frá borginni fyrr en á föstudaginn var. Var að gera 9 mánaða uppgjörið fyrir Eignasjóðinn.  Það var því mikið að gera vinnulega séð í nóvember, en það var ekki það eina.

Veikindi herjuðu á fjölskylduna í nóvember, mamma kom í bæinn rétt fyrir afmælið sitt og veiktist svo illa að hún lendi inn á spítala í 4 daga. Daginn áður en mamma losnaði út veiktist Andrea fékk þessa leiðinlegu ælupest og svo ég nokkrum dögum seinna.

Vinahópurinn fór á  “jólahlaðborð” á Einar Ben í lok nóvember og gekk það bærilega. Við höfðum pantað rauða herbergið rúmum mánuði fyrr en fengum það ekki. Gísli kríaði út góðan afslátt  vegna þess. En við sátum í bláa herberginu og þetta var furðulegasta jólahlaðborð sem ég hef farið á. Þjónustan var góð og maturinn fínn en þetta var eiginlega svona pinna jólahlaðborð. Það var komið með tvö bakka á borðið til okkar og á bakkanum var s.s. maturinn í litlum skálum og meðlætið var einnig borið fram í litlum skálum. Þær voru það litlar að þegar fjórir (af tólf) voru búnir að fá sér t.d.  brúnar kartöflur þá voru kartöflurnar búnar og þurfti að kalla á þjóninn til að fá áfyllingu. Þið getið ímyndað ykkur vinnuna fyrir þjónana.  En allir fóru saddir út og sáttir en hissa á útsetningu hlaðborðsins.

Núna er jólaundirbúningurinn komin á fullt, enda bara 19 dagar til jóla :)

Posted in Fréttir | Tagged , | 2 Comments

Spjallborð loftsins !

forum
Jæja góðvinir loftsins stundin er runin upp !

Spjallborð loftsins er komið í loftið.

Til að skrá sig á spjallið þarf að smella á “Skrá sig” sem er í haus spjallborðsins :)

Tilgangur þess er að sameina vini og félaga og halda uppi skemmtilegum umræðum.

Allir eru velkomnir sem heimsækja þessa síðu.

Posted in Fréttir | Tagged , | Comments Off

Houston we “dont” have a problem… við erum á lífi :)

IMG_0708.JPG

Og planið er að koma einhverju inn í þessari viku. Svo verður lunch-að spjallborði loftsins í næstu viku.

og á meðan mæli ég með þessari snilldar auglýsingu :)

Posted in Fréttir | Tagged , | 1 Comment

Köben

Við, Maren, Elísabet, Þóra Sigga og ég, skelltum okkur til Köben um síðustu helgi. Það var ofboðslega gaman. Flugum út á fimmtudagsmorgni og höfðum því 3 daga í að versla og það var sko verslað :)

DSC03810.JPG

Fimmtudeginum eyddum við á strikinu. Það var mjög gaman að rölta þar og skoða um. Ekki var samt mikið verslað þá fyrir utan eitt par af GEÐVEIKUM skóm sem ég fann í Aldo. Maren fann sér líka eitt slíkt par í Aldo en einungis íslenskir bankastjórar hefðu haft efni á þeim :) Það voru víst bara framleidd ansi fá pör af þessum tilteknu skóm og einungis 8 slík pör voru til í allri Danmörku. Við slöppuðum bara af um kvöldið, hlógum soldið mikið. Ég tók nefnilega með mér bréf sem ég fann heima hjá mömmu og pabba. En það voru bréf frá því að við vorum í 9 bekk. Flest voru þau frá Elísubetu til mín. Já maður var víst að skrifast á í tímum. Þau voru ógeðslega fyndin og verða vel geymt þangað til Elísabet giftir sig, þá verða þau dregin upp aftur :)

Á föstudeginum kíktum við í Fiskitorfuna og versluðum alveg slatta mikið. Maður gekk sig alveg upp að hnjám í þessari ferð. Kvöldið var síðan hápunktur dagsins en þá fórum við að borða á Reef ´n Beef. Maturinn var sjúklega góður. Við pöntuðum tvö forrétti sem við deildum á milli okkar en það var Krókódíll í einhvers konar orlydeigi og reyktur Emu sem var vafinn inn í svona “öðruvísi” tortillaköku. Í aðalrétt fengum við okkur allar Tazmanian devil, en það er medium rare Kengúrulund með sætum kartöflum, ætisþistlum og piparsósu. Kjötið var ótrúlega mjúkt og bráðnaði næstum því í munninum. Síðan í eftirrétt fengum við okkur Death by Chocolate. Þetta var ofboðslega gott allt saman og ekki svo dýrt einhver 5000.- á mann með víni og kokkteil.

DSC03826.JPG

Við gerðum síðan heiðarlega tilraun til að djamma í Köben og kíktum á Rosie McGee. Það var frekar gaman þar svona framan af kvöldinu. Við fífluðumst soldið með myndavélina og drukkum nokkrar tegundir af kokkteilum. Síðan ætluðum við að færa okkur um set en fundum engan skemmtilegan stað. Enda vorum við orðnar ansi þreyttar eftir tveggja daga labb þannig að við fórum bara snemma heim. Elísubet fannst það soldið lélegt af okkur.

Á laugardeginum kíktum við í Fields, þar var verslað enn meira. Ég verslaði samt mest í HM. Um kvöldið kíktum við í Tívolíið og það var GAMAN. Ég er svo stolt af mér, ég fór í RÚSSÍBANA!!!!! Það var geðveikt ætla sko pottþétt aftur langar að fara aftur til Köben bara til að geta borðað á Reef ´n Beef, kíkt í HM og farið í rússíbana :) Það yrði sko góð ferð. Ég og Maren fórum svo í Star flyer en það er svona RISA róla, það var geðveikt maður sá bara næstum því yfir alla Köben.

DSC03827.JPGSunnudeginum eyddum við á Strikinu og Nýhöfn. Fórum í siglingu og það var djassband um borð að spila. Þetta var alveg 1,5 klst sigling. Farið var um höfnina og inn skurði. Maður sá ýmislegt, aftan á hafmeyjuna og svo sáum við sænskt sjóræningaskip. Við fórum síðan bara snemma upp á flugvöll, ansi fegin að við gerðum það því röðin í tax free dæmið var mjög stutt þegar við komum en gífurlega löng þegar við vorum búnar í henni.

Mig langar ofboðslega að fara í sumar til Danmerkur og vera í svona sumarhúsi. Það yrði örugglega gaman.

Þóra Sigga er líka búin að henda inn þó nokkuð mikið af myndum endilega kíkjið á þær !

guðrún flott

Posted in Fréttir | Tagged , | 5 Comments

Internet Explorer bug !

Bryndís hefur bent okkur góðlega á að loftid.net er eitthvað “fucked” þegar hún er skoðuð í Internet Explorer, ég er að vinna í því að komast að því hvað vandamálið er en ég tók því miður ekki eftir þessu því ég notast eingöngu við Firefox sem að mínu mati er eina málið í bransanum.

Ég mæli því hér með …..að allir sem sækja loftid.net og internetið almennt næli sér í refinn góða !

Posted in Fréttir | Tagged | 2 Comments