Gummi Afi á afmæli

DSCF3715

Posted in Uncategorized | Tagged | Comments Off

Esther Ruth á Afmæli

Esther og Hekla

Posted in Uncategorized | Tagged | 1 Comment

Hrafnkell Ari átti afmæli í GÆR !

usss en við að gleyma að pósta kveðju !!!

Til hamingju með daginn í gær Hrafnkell og við hlökkum til að koma í veislun á sunnudaginn.

DSC00327.JPG

Posted in Fréttir | Tagged , | 3 Comments

STAMA OPEN

Haldið á GKG í Garðabæ.

Posted in Uncategorized | Tagged | Comments Off

Útilegan…

IMG_1906.JPG

Við lögðum af stað í útileguna á föstudaginn og tókum stefnuna á Hellishóla. Okkur leist mjög vel á staðinn, það er fín leikaðstaða fyrir börnin. Trampolínið var samt ekki alveg að gera sig. Vantaði að setja reglur í kringum það. Slatti af krökkum meiddu sig þar. Það virtist vera langskemmtilegast hjá þeim að vera svona 8 í einu og einn eða tveir lágu á bakinu á meðan hin reyndu að hoppa yfir þá sem lágu. Óþarfi að segja þá olli þessi iðja grát og gnístan tanna.

IMG_1806.JPG

Okkur tókst bara vel að tjalda tjaldinu okkar, enginn verulegur ágreiningur og við unnum vel saman… annað en fólkið sem kom sér fyrir, fyrir aftan Halldór og Ósk. Við vorum búin að koma okkur vel fyrir þegar þau mættu með prinsessuna og Gísli aðstoðaði þau við að tjalda á meðan við Andrea lékum okkur. Tjaldsvæðið fylltist fljótt og var mikið gaman hjá flestum, enda verslunarmannahelgi. Við slökuðum bara á fyrsta kvöldið okkar og gripum í spil eftir að Andrea var sofnuð.

Á laugardeginum þá skruppum við að skoða umhverfið. Fórum á Múlakot en þar var flugmót. Andrea var mest hrifin af hoppukastalanum, hún skoðaði þó flugvélarnar með pabba sínum. Var soldið spælt að mega ekki fara um borð en hún fær það einhvern tíman.

IMG_1971.JPG

Continue reading

Posted in Fréttir | Tagged | 1 Comment