aðal afmælisvikan liðin.

Þá er líklega mesta afmælisvika ársins liðin.  Við héltum upp á afmæli stelpnanna saman fyrir fjölskylduna síðasta sunnudag (7.feb). Það gekk nú bara ágætlega þrátt fyrir þrengslin á heimilinu. María Þrá smakkaði köku var ekkert sérstaklega hrifin af henni. Hún hafði heldur ekki mikinn áhuga á að opna pakkana, vildi frekar naga þá. Hrafnkell var mjög duglegur að aðstoða hana við að opna þá. Andrea Ruth var líka ánægð með daginn, lítur samt á þann dag meira sem afmælið hennar Maríu en sitt. En hún var voða ánægð með barbíe kökuna sína sem var dressuð upp í fríðu búning. Hún var líka í skýjunum með allar gjafirnar og þá sérstaklega pennaveskið sem María gaf henni. Á föstudaginn (12.feb) átti Andrea svo afmæli. Við gáfum henni auka afmælisgjöf þá um morguninn, en hún var nú smá stund að taka eftir henni en var síðan voða kát og hefur sofið með gjöfina upp í rúmi hjá sér síðan. En hún fékk s.s. skólatösku!! Ótrúlegt að hún sé að fara að byrja í skóla í haust. Hún fékk einmitt svona lestrarbók í afmælisgjöf og hefur verið að lesa 2 bls í henni á hverju kvöldi síðan, gengur ofboðslega vel hjá henni. Hún fékk síðan að velja kvöldmatinn og valdi hún að fara á Metro. Hún var mjög ánægð með barnaboxið sitt en okkur Gísla fannst þetta vera frekar óætur matur, meira að segja gulræturnar sem ég fékk mér í staðinn fyrir franskar voru mjög misjafnar.  Hún bauð síðan vinum sínum að koma í afmæli í ævintýralandi Smáralindar í dag. Það var sko búningaafmæli og þær voru alveg 3 skellibjöllur í boðinu!! Ekkert smá flottar skvísurnar, drengirnir í árgangnum hennar voru reyndar ekki að nenna að klæða sig svona upp. En það byrjar greinilega snemma hjá stelpunum að ráðskast með þá, þeim var alveg skipað slatta fyrir af stelpunum.  Þetta lukkaðist allt ljómandi vel og mjög sniðugt að halda afmæli þarna, sérstaklega þar sem maður hefur ekki pláss á heimilinu.

IMG_8863

IMG_8865

En það voru víst ekki bara skvísurnar okkar sem áttu afmæli í vikunni. Það vildi svo skemmtilega til að Yrja og Ronja voru á landinu og þær eiga afmæli einmit 12 feb líka og buðu þær Andreu í veislu á fimmtudaginn, Arndís vinkona hennar af leikskólanum á líka afmæli 12 feb og var hennar afmæli haldið í gær. Síðan má náttla ekki gleyma Jóni Sævari pilturinn loksins orðin sjálfráða og fjárráða, s.s. varð 18 ára  11 feb… uhmmm ég er s.s. orðin frekar gömul og auðvitað hún E-bet vinkona varð tuttugu-og-ellefu ára þann 6 feb. Þannig það er alltaf mikið að gera í byrjun febrúar.

Fyrir utan allt afmælisstúss í vikunni, þá gengur allt bara vel. Náði báðum prófunum sem ég tók í janúar og er því búin með eina önn í mastersnáminu og svo er slatti að gera í vinnunni.

Posted in Fréttir | Comments Off

María hlær og hlær

María hlær af despicable me

Posted in Fréttir | 2 Comments

María Þrá röltir smá :)

Posted in Fréttir | 1 Comment

Jólakveðja

Posted in Fréttir | Comments Off

Tennur og Alþingi

Þá er nóvember að líða og jólaljósin að hoppa upp. Andrea Ruth er mjög svo spennt og finnst ótrúlega gaman að kalla “jólaljós” í hvert skipti sem hún sér jólaljós… sem undanfarna daga er orðið ansi mikið af. Hún bíður spennt eftir 1 des því þá setjum við upp ljósin hjá okkur.

Hún er alltaf jafnmælsk og vanalega og bara í gær kom upp úr þurru við matarborðið: “Mér finnst alþingi leiðinlegt.” Hún var spurð afhverju, þá kom “bara mér finnst alþingi leiðinlegt”.  og fyrir nokkrum dögum var hún að llita fyrir framan sjónvarpið og það eru auglýsingar í því og hún segir: “Það á aldrei að trúa auglýsingum.” Er spurð afhveru og svarið: “eins og í kringlunni, þá segir hún ,,kringlan komdu í heimsókn” en ekki ,,viltu koma í heimsókn”"

María Þrá er alltaf að stækka og verða duglegri. 18 nóvember kom loksins tönn, reyndar ekki ein heldur tvær! Hún er líka farin að myndast við að standa óstudd og nær að standa þannig í rúma hálfa mínutu áður en hún missir kjarkinn og sest niður. Ekkert smá dugleg.

svo er það alveg makalaust að loksins þegar María sefur ágætlega yfir nóttina (vaknar bara kl 2 og svo aftur upp undir morgun) að þá er sjómaðurinn á neðri hæðinni með dúndrandi partý. Öfunda Gísla yfir að hafa getað sofið þrátt fyrir tónlist. Andrea vaknaði en náði að sofna aftur mjög fljótt og María virtist ekki láta þetta á sig fá, s.s. pirraði bara mig.

Það er komið fullt af nýjum myndum inn á flickr……..

IMG_8513
Ástrós og Óli lánuðu okkur Wii og komu síðan og spiluðu með Gísla og Andreu. Andrea sýndi náttla snildartakta :)

IMG_8065

Posted in Fréttir | Comments Off