Kósy í útilegu



Kósy í útilegu, originally uploaded by Guðrún og Gísli.

—- ?Sent using a Sony Ericsson mobile phone

Posted in Fréttir | Tagged | 3 Comments

útilega

Jæja þá er komið að annarri útilegu sumarsins. Við erum búin að græja okkur rosalega vel, keyptum okkur tjald í gær . Það verður vonandi þrælfínt. Mamma og pabbi sendu okkur síðan í morgun ferðakolagrill og helluborð með 2 gashellum. Tengdó lánaði okkur svefnpoka og gashitara, Guðrún frænka lánaði okkur borð sem er fallega gult :) Við fórum svo í dag að versla regnstakk á Gísla í leiðinni verslaði hann afmælisgjöfina mína :) hún er rosa flott. Það er svona hvítt dúnvesti frá 66 gráðum norður og hvítur sjóhattur. Ég verð sko aldeilis fín.

veðrið versló 2007 3

Í kvöld verður síðan ákveðið hvert skal halda og ætlum við að notast við snildarsíðu sem Halldór og Ósk bentu okkur á, belgingur heitir hún. Þar er hægt að sjá hvernig hiti, rok og rigning ferðast yfir landið. Við ætlum að leggja í hann í fyrramálið, Halldór og Ósk leggja svo af stað seinni partinn og hitta okkur.

Svo fáið þið bara fréttir eftir útileguna :) Góða skemmtun um verslunarmannahelgina!!!!!!

Hey there delilah – Plain White T’s

Posted in Fréttir | Tagged , | Comments Off

Andrea og nýja hlaupahjólið

Já helduru að amma og afi í Efstuhlíðinni hafi ekki gefið Andreu hlaupahjól í dag ! Við látum video segja söguna.

Posted in Fréttir | Tagged , , | 1 Comment

Veiði í Norðurá

IMG_1665.JPG

Jæja mamma, hérna er svo Maríulaxinn sem þú baðst um 5 punda hængur :)

Það er svo sem ekki mikið hægt að segja meira en að ég lærði að kasta flugu og náði mér í skemmtilega reynslu í laxveiði ásamt því að kynnast öllum siðunum sem fylgja.

Norðurá var góð og allur aðbúnaður frábær…. ætti líka að vera það þegar stöngin kostar 180 þús per dag :) hhehe endilega skoðið flicker síðuna til að sjá fleiri myndir.

Posted in Fréttir | Tagged | 4 Comments

7 ár og veikindi

Það eru komin 7 ár síðan við Gísli byrjuðum að vera saman :) Við eyddum deginum okkar í að flísa eldhúsið, á milli efri og neðri skápanna inn í eldhúsi. Gísli reyndar sá aðallega um þetta, ég þurkaði af límið sem þrýstist út á milli flísanna og hugsaði um litlu sponzuna okkar. En hún er veik :( Byrjaði að kasta upp aðfararnótt sunnudags. Í gærdag var hún með ansi háan hita og upp & niðurgang. Mér leist ekki vel á blikuna í gærkvöldi þegar hún byrjaði að kippast til og hristast öll. En hún náði þó að sofa ágætlega í nótt og þegar ég heyrði í þeim áðan þá var hitinn búinn að lækka. Vonandi að sú lækkun haldist og að skvísan verði hitalaus á morgun.

IMG_15gg37.jpg réttIMG_1537.jpg rangt

Annars er maður ekkert búinn að skrifa hér inn lengi. Það er margt búið að gerast, við fórum í útilegu þar síðustu helgi með Önnu, Gulla, Emilíu, Sigrúnu, Magnúsi, Kareni og Ríkharði. Tjölduðum í Reyðarfellsskógi en það tilheyrir Húsafelli og er svona 3 mín frá. Bryndís og Gummi giftu sig 6 júlí síðastliðinn og eru þau núna að flakka um heiminn. Síðast þegar við fréttum af þeim þá voru þau í Indlandi og voru að fara til Agra. Berglind og Sigurgeir giftu sig á laugardaginn (21. júlí). Rósa og Viðar áttu 1 árs brúðkaupsafmæli 8. júlí síðast liðinn. Við óskum þessum skötuhjúum til hamingju með dagana sína. Ég og Andrea kíktum líka aðeins til eyja þegar goslokahátíðin var. Vorum þar í nokkra daga og höfðum það bara fínt. Gísli setur líklega inn myndirnar fljótlega.

Posted in Fréttir | Tagged | 2 Comments