Nóvember

Þá er nóvember genginn í garð.  Ég var í lokaprófum í byrjun mánaðarins, það var frekar strembinn tími, þar sem María var mikið í pössun svo ég gæti lært. Síðan prófin kláruðust hefur hún verið mikið að passa upp á mömmu sína. Hún stækkar og stækkar og er orðin 9 mánaða, ekkert smá fljótt að liða. Hún er búin að ná betri tökum á að nota hinu ýmsu hluti sem göngugrind, en hefur ekki náð eins góðum tökum á því að sofa í rúminu sínu. Það gengur brösulega og hefur hún erft þrjóskuna okkar Gísla sem gerir þetta enn erfiðara.  30. október sagði hún “babb-ba” og meinti pabbi.  Hún er einnig farin að segja “mamma” og svo segir hún “namm”. Það getur verið mjög fyndið því nýjasta hjá henni er að reyna að stinga upp í mann dótinu sem hún heldur á og segja “namm”.  Mjög svo góð að gefa manni að smakka á dótinu sínu. Hún er alltaf jafn hrifin af Andreu og ljómar öll þegar hún sér hana. Hún skilur þó ekki leikinn sem Andrea er mest í með henni, en hann felst í því að “njósna” um Maríu og passa að María sjái sig ekki. Hún er dugleg að borða og er farin að borða ansi fjölbreytt, hún er búin að fá nautagúllas, nautahakk, lambakjöt, fisk og allt grænmeti. Henni finnst voða gaman að týna upp í sig cherios eða brauð. Hún á það til að koma með hina yndislegu svipi og hin furðulegustu hljóð.

Af Andreu Ruth er það að frétta að hún fór til Guðmundar, bæklunarlæknis um daginn. Hann er mjög ánægður með hana og finnst hendin hafa réttst aðeins meira til hægri og virðist vera alveg bein þegar hún er í hvíld. Hann er einnig ánægður með hvað saumarnir greru vel og hversu vel örin líta út. Þumallinn mætti vera meira út og talaði hann um að hægt væri að hafa í huga einhvern tíman í framtíðinni að strappa hann upp. Hún missir kraft í hendinni þeagr hún kreppir hnefa þar sem að þá dettur úlnliðurinn niður. Hún á að koma aftur eftir 6 mánuði. Ef Thomas kemur til landsins fyrir þann tíma, þá verður kallað á okkur og hún send til hans í skoðun.  Hun á síðan að byrja aftur í iðjuþjálfun og þurfum við að hafa samband við Elsu um að koma henni aftur í hana.  Skvísan fór síðan til augnlæknis í síðustu viku og lítur allt ljómandi vel út þar. Andrea var ekkert smá dugleg og þurfti ekki að nota blað til að benda á stafina sem hún sá, enda er hún farin að þekkja stafina. Þrátt fyrir að vera fjarsýnni á vinstra auga, þá sá hún ekki verr með því. Hún á því bara að halda áfram að vera með gleraugun og koma í eftirlit eftir ár.

Andrea er byrjuð að læra að lesa, reyndar er smá pása í því núna, þar sem hún var farin að vera pirruð ef við leiðréttum hana eða leiðbeindum. En henni gekk mjög vel og ruglast helst á sérhljóðunum. Hún er búin að eiga nokkrar snildarsetningar undanfarnar vikur, t.d. spurði hún hvort við ætluðum að hafa sebrahest í jólamatinn, hvort ísland væri á hvolfi. Síðan sagði hún mér að Valdi afi væri með svona svartar tennur af því þegar hann var lítill þá var ekki til nógu mikið af tannlæknurum. Hún spurði mig einnig um daginn, hvort ég kynni að teikna brjóst í peysu. Sagði að Nína kynni að teikna brjóst í peysu í gær kom hún svo heim með teikningu af stelpu sem var með brjóst og í peysu :) Er ekki búin að vera nógu dugleg að hripa niður það sem hún hefur verið að segja en hún er ótrúlega fyndin stundum. Hana langar mjög að flyta líkt og restinni af familíunni, en hennar ástæða er sú að hana hlakkar svo til að geta leyft Heklu frænku að gista.

Svona rétt í lokin viljum við óska afmælisbörnum nóvembersmánaðar til hamingju með daginn sinn :)

Posted in Fréttir | Comments Off

Allir hressir

Þá eru allir á heimilinu orðnir hressir.. fyrir utan kvef hjá Maríu Þrá.  Svo er bara að vona að það komi ekki annar flensufaraldur á heimilið, en við vorum að fá bréf frá leikskólanum hennar Andreu Ruthar í gær og er svínaflensan búin að skjóta niður þar. 3 staðfest tilfelli og eitt á deildinni hennar Andreu.

Gísli er búinn að laga anddyrið hjá okkur og nú þarf bara að spasla, pússa og mála. Það fer á verkefnalistann fyrir jólin. Væri reyndar alveg til í að mála alla íbúðina fyrir jólin. En spurning hvort maður hafi tíma í það.

María Þrá er orðin 8 mánaða, hún er að fara á morgun í skoðunina og það verður gaman að sjá hversu stór og þung hún er orðin. Matarlystin hennar er öll að komast í lag eftir veikindin. Hún er búin að fá að smakka kjöt og kjúkling. Finnst það ekkert spes gott, líklega áferðin sem er ekki að heilla hana. Hún er orðin frakkari í að ganga meðfram og er búin að læra að fara niður þegar hún stendur sem er fínt. Því hún getur sest þá sjálf þegar hún er orðin þreytt á að standa. Við töluðum við svefnráðgjafa í gær  og gaf hún okkur smá ráðleggingar varðandi að láta Maríu sofa í rúminu sínu, en hún hefur ekki viljað að sofa í rúminu sínu núna í frekar langan tíma.  Við byrjum bara hægt, fyrst að venja hana af því að sofna á brjóstinu og svo um helgina mun Gísli sjá um hana.

Andrea Ruth er búin að uppgötva að það er mjög spennandi að sofa inn í stofu. Nú vill hún sofa þar til að æfa sig áður en hún fær nýtt herbergi, sem verður samt líklega ekki í bráð. Hún er búin að fá að sofa í sófanum þrisvar sinnum og ætlar að fá að halda því áfram eitthvað. það er svo sem fínt á meðan við erum að díla við Maríu. Hún er búin að eiga nokkrar snildar setningar undanfarið og er ein af þeim þessi: “vá!!! hvað hann er með stórt nef, það nær alla leið upp á enni.” En þetta kom þegar hún sá auglýsingu fyrir myndina “Race to witch mountain”

Posted in Fréttir | 1 Comment

Myndataka hjá Maríu

Posted in Fréttir | 3 Comments

Fréttir frá Þrastarásnum

Það hefur nú ýmislegt drifið á daga okkar hérna í þrastarásnum… aðallega veikindi þó. Gísli ætlaði að vera svaka myndarlegur og laga blessaðann vegginn inn í anddyri og búin að redda sér öllu sem þurfti í verkið. En þegar kom að því hjá honum að blanda efnunum saman þá fékk hann í bakið og hrundi niður. Mér brá ekkert smá þegar ég sá hann fara niður.  Hann tók því rólega alla síðustu viku og er núna allur að koma til.  Ég veiktist síðan fékk þessa hræðilegu kvefpest ásamt höfuðverk, beinverkjum og fleiru miður skemmtilegu. Andrea veiktist á þriðjudaginn, hiti og allur pakkinn. Hún er örlítið hressari núna. María er búin að vera kvefuð í heilan mánuð, rúmlega það. Nasakvefið er þó að minnka og hósti að taka við.  Þetta ástand á fjölskyldunni fer vonandi að líða hjá.

María Þrá er annars hörkudugleg, hún byrjaði að standa upp 12 september (7 mán. og viku gömul), þá vorum við í eyjum að hjálpa Gumma afa að flytja af búhamrinum.  Hún var örlitið á undan eldri systur sinni í þessu en Andrea Ruth stóð upp 7 mán og 2ja vikna. María er síðan farin að ganga meðfram. Tók fyrstu skrefin 27 sept. (7 mán. og 19 daga). Hún ýtir annað hvort dótakassanum sínum eða eldhússtól á undan sér. Andrea var aftur á móti þó orðin 8 mánaða og viku gömul þegar hún fór að ganga meðfram. Þannig þær eru á svona svipuðu róli systurnar.

María er dugleg að borða og fær núna 4 máltíðir á dag, hún er samt enn á brjósti. Hún er farin að borða hin ýmsu grænmetismauk og er farin að vilja kartöflur. Hún fékk að smakka smá pasta í gær og fannst það allt í lagi, hún var ekki eins hrifin af grjónagrautnum sem ég bjó til fyrir hana. En fannst weetabixið gott :) Henni líkar vel við brauð hvort sem það sé bara með smjöri eða kæfu. Hún er bara frekar sátt með þetta.

Andrea Ruth er byrjuð aftur í ballett og finnst mjög gaman þar. Hún er líka byrjuð í söngskóla Maríu Bjarkar og finnst það ótrúlega gaman. Ég fékk að heyra hana syngja í míkrafón um daginn og það ótrúlega ar flott hjá skvísunni :) Hún er mikið að spá í hvaða skóla hún muni fara í á næsta ári. Enda komin i skólahóp í leikskólanum. Við getum voðalítið svarað því með vissu þar sem fasteignakaup eru á hold í augnablikinu.

Ég þarf víst að nota tíman á meðan María sefur til að læra undir próf, væri samt alveg til í að sofa líka þar sem undanfarnar vikur hafa verið sérstaklega erfiðar. María sefur frekar illa og svo var Andrea líka að vakna í nótt með verki.

blurb frá gísla : ég verð bara alltaf að prófa allt :) ..www.robo.to /gisli

Posted in Fréttir | Comments Off

María Þrá spjallar við stólinn.

Posted in Fréttir | 1 Comment