Anna Amma með Langömmu

docu0008

Posted in Fréttir | 1 Comment

Hreindýraveiði

Við feðgarnir fórum saman til Egilsstaða og skemmtum okkur konunglega :)

Best að skoða í “fullscreen” .. þetta er jú High Def video comon :)

Posted in Fréttir | 3 Comments

um rómantík og sveskjumauk

Við skötuhjúin ákváðum í tilefni af þrítugsafmælum okkar að fara saman í helgarferð í stað þess að halda svaka veislu.  Stelpurnar voru í pössun, Andrea hjá Önnu ömmu og Valda afa en María Þrá hjá Elísubet. Við lögðum af stað austur á Hallormsstaði á föstudagsmorgni og ferðin var mjög skemmtileg. Ég sá t.d. jökulsárlón í fyrsta skipi og það ótrúlega magnað. Ekkert smá fallegt þarna og næst þá gefum við okkur tíma til að sigla um lónið. Við stoppuðum á nokkrum stöðum á leiðinni t.d. á Þverá, en Gísli var þar í sveit. Við keyrðum yfir Öxa og útsýnið þar er virkilega fallegt. við vorum síðan komin á Hallormsstaði um sexleytið. Kíktum á kofann sem við höfðum til umráða og fórum síðan á Egilsstaði að finna okkur kvöldmat. Okkur brá báðum mjög þegar við sáum Egilsstaði, við héltum bæði að bærinn væri mun stærri en hann er. Okkur var bent á að borða á Café Nilsen og gerðum við það, maturinn þar var ofboðslega góður.
IMG_7805

Á laugardeginum gengum við frá kofanum okkar, sem var við Hússtjórnunarskólann, og að Atlavík. Við skoðuðm trjáasafnið á leiðinni. Það er ótrúlega fallegt þarna við Lagarfljót og væri gaman að fara í Atlavík í útilegu. Við kíktum síðan á svona markað á Egilsstöðum áður en við héltum af stað til Borgarfjarðar – eystri. Það var ofboðslega gaman að fara þangað, akstursleiðin falleg og skemmtileg. Þorpið er ótrúlega krúttlegt. Við skoðuðum þar Kjarvalssafnið, álfaborg og fórum á kaffihúsið á staðnum. Þessi kall var svo vinsamlegur að vísa okkur leiðina þangað :)

IMG_7865

Um kvöldið var svaka skemmtun hjá bæjarbúum í bragganum við hliðiná sláturhúsinu. Við höfðum keypt okkur miða á það á föstudeginum. Í matinn var heilgrillað hreindýr með salati, nýjum kartöflum og sósu. Maturinn var mjög góður, verst að það var aðeins of lítið alla vega gátu ekki allir (200 manns) farið aftur og fengið ábót. Við sátum á borði með hjónum, Friðrik og Margrét og börnum þeirra, Birki og Ernu. Þau voru mjög almennileg og spjölluðum við alveg helling við þau. Það voru ýmis skemmtiatriði, aðallega söngur og var tekið vel undir af gestunum. Eftir skemmtunina þá keyrði Erna og vinkona hennar okkur upp í kofa, önnur keyrði bílinn okkar og hin elti. Áður en við héltum svo af stað í bæinn aftur þá kíktum við í smá kaffi til þeirra. Ég kannaðist svo við Margréti og hún við mig, við gátum samt engan vegin munað hvar við hefðum hist áður. Við fórum norðurleiðina heim, var eitthvað verið að plata okkur áður en við lögðum af stað að maður færi fljótari að fara hana, en svo er ekki. Maður er jafnlengi að keyra þetta og austurleiðin er mun skemmtilegri. Mæli með því að fólk fari þá leið sé það að fara á Egilstaði.

Af yndislegu stelpunum okkar er allt ljómandi að frétta. Andrea Ruth er byrjuð aftur í leikskólanum og er komin í drekahóp í leikskólanum. Hún bíður spennt eftir vetrinum því þá byrjar hún aftur í ballett og fer í söngnám. Verður nóg að gera hjá henni um helgar :)

6 mánaðaAndrea Ruth 6 mánaða

María Þrá er svakadugleg, hún er farin að skríða áfram, sitja og setjast upp. Það verður stutt í að hún fer hraðar um og þá er eins gott að hafa augun opin því henni finnst dótið hennar Andreu mjög spennandi. Hún er líka farin að borða meira yfir daginn, farin að vilja annað en hirsi graut þó hún sé ekki að kaupa kartöflurnar. Hún er farin að líka betur við gulræturnar og bananann en í gær fékk hún heimatilbúið sveskjumauk og henni fannst það alveg þvílíkt gott.

IMG_7922María Þrá 6 mánaða

Posted in Fréttir | 1 Comment

Sumarbústaður 7-14 ágúst

Við vorum í bústað í Hraunborgum síðustu viku. Það var ofboðslega næs, afslöppun, afslöppun og meiri afslöppun. María Þrá fékk að smakka í fyrsta sinn sætar kartöflur, svona í tilefni af 6 mánaða afmælinu. Henni þóttu þær ekkert góðar, reyndi næstu daga að gefa henni þær blandaðar í grautinn í mismiklu magni. En henni fannst þetta samt ekkert spes. Hún fékk líka að prófa banana, fannst hann betri en var ekki sólgin í hann. Henni finnst Hirsi grauturinn algjört nammi og spennist öll upp þegar hún sér matardiskinn sinn. Hún María er hörkudugleg, hún er næstum því farin að setjast upp, vantar bara pínu pons upp á það. Hún er samt ekki enn farinn að skríða áfram, ferðast enn um afturábak en fer upp á hnén og ruggar sér.

IMG_7662
Við héldum upp á afmælið mitt í bústaðnum. María gaf mér það í gjöf að sofa alveg til hálf tíu :) Andrea Ruth gaf mér trefil sem hún hafði puttaprjónað alveg sjálf. Hann var mjög flottur, bleikur og blár á litinn. Gísli, Andrea og María gáfu mér DG bol, ótrúlega flottur :) Við fórum síðan á Selfoss, þurftum að versla aðeins inn og sérstaklega bleyjur þar sem Maríu Þrá tókst að klára bleyjurnar fyrr en áætlað hafði verið og lendum við í smá púsli með hana á sunnudagskvöldinu. Hún auðvitað gat ekki gert okkur þann greiða að kúka ekki, en þetta hafði verið ansi hægðasamur dagur hjá henni. Eftir að við vorum búin að kaupa bleyjur fórum við í sund á Selfossi. Það var alveg yndislegt veður og æðislegt að slappa af í lauginni. María Þrá fékk að “prufa” barnavatnsrennubraut og fannst það mjög gaman. Andrea eyddi löngum tíma með pabba sínum í stóru lauginni við að kafa og synda. Þegar við komum aftur upp í bústað þá græjaði ég smá kaffi og við fengum okkur súkkulaðiköku með grænu kremi og perutertu. Andrea og Gísli sungu afmælissönginn fyrir mig :) Við toppuðum síðan daginn með því að grilla humar og skála í hvítvíni. Dagurinn var aldeilis frábær :)

Við  kíktum á markað á Borg, kallaðist Grimmsævintýri. Það var mjög gaman að sjá hvað fólkið í sveitinni er að vinna. Þar var það samankomið og var að selja handverk sín, grænmeti og fleira. Við smökkuðum á rabbabarakaramellu, það var furðulega gott miðað við að vera karamella búin til úr rabbabara. Við versluðum okkur skóhorn, mjög svo flott og Anna amma gaf Andreu jólasvein búin til úr steinum. Það var ágætlega gestkvæmt hjá okkur. Halldór og Ósk kíktu við, Anna amma og Valdi afi, Adda amma og Þór og síðan Elísabet Árný.

IMG_7760
Við fórum á Þingvelli, ætluðum að fara að veiða og förum búin að kaupa veiðileyfi og koma okkur fyrir í Vatnskoti þegar við uppgötvuðum að við vorum ekki með flotholt. Við reyndum að útbúa flotholt úr flöskutappa en það gekk ekki upp, eins og við var að búast. Í staðinn skoðuðum við okkur um á Þingvöllum og Andrea Ruth fékk að kasta krónum í peningagjá. Gísli sjarmeraði síðan afgreiðslustelpuna sem hafði selt honum veiðileyfið upp úr skónum og fékk hana til að breyta dagssetningunni á veiðileyfinu. Þannig daginn eftir var brunað á Selfoss og keypt flotholt, ormar og taska undir allt veiðidótið síðan var farið aftur á Þingvelli, Vatnskot og reynt að veiða. Andrea tók sig vel út við veiðiskapinn en fannst ekki gaman að við skyldum ekki ná að veiða neitt. Hún gafst upp á endanum og fór að príla í kringum vatnið og endaði auðvitað á því að renna út í. Hún blotnaði nú samt ekki svo mikið, bara upp fyrir ökkla. En þá var veiðiferðinni sjálf hætt og farið aftur í bústaðinn.

IMG_7638

Posted in Fréttir | Comments Off

Útilegan

Við fórum í útilegu yfir verslunarmannahelgina. Það var lagt af stað í hádeginu á föstudeginum og enduðum við á Hellishólum. Við vorum í góðra vinahópi og skemmtum okkur konunglega. Þegar við mættum var ansi mikið af fólki á svæðinu en það var samt pláss fyrir okkur, um kvöldið komu síðan Bryndís og Gummi. Það var ýmislegt brallað, það var spilað kubbur, krikket eða krokket… man aldrei hvort það er. Það var skroppið í sund á Hvolsvelli á laugardeginum, þar var nú svo stappað að það var ekkert pláss í búningsklefanum og yfirtroðið í öllum heitu pottunum.  Eftir sundið kíktum við á Skóga og skoðuðum Skógarfoss og gengum upp á fjallið. Á skógum var full rúta af ítölum og sjarmaði María Þrá þrjár ítalskar ömmur upp úr skónum. Þær voru einnig mjög hrifnar af Andreu Ruth. Ef Andrea er spurð hvað sé minnistæðast við Skóga, þá er það líklega konan sem hún sá æla. Greyið konan varð bílveik og Andreu fannst þetta mjög merkileg og var mikið að spá í þessu. Eftir skóga var haldið á tjaldsvæðið þar sem Andrea Ruth og Emilía fengu andlitsmálningu þæru breyttust í undurfögur fiðrildi. Sigrún og Anton komu síðan um kvöldmatarleytið. Eftir matinn var fóru flest allir á brekkusöng og varðeld. Guðrún varð eftir í tjaldbúðunum til að hlusta eftir yngstu kynslóðinni. Hafði það kósý með heitt kakó, nammi og skáldsögu í eyrunum. Þegar eldri börnin voru farin að sofa var ákveðið að kveikja smá varðeld í grillinu þeirra Jóns og Betu. Það varð ágætist skemmtun að fylgjast með Gísla safna eldiviði í eldinn. Hann sló í gegn með leatherman-inum sínum.  Á sunnudeginum var liðið drifið í sund fyrir hádegi og var farið nú á Hellu í sund. Sundlaugin þar var mun betri en á Hvolsvelli og var hleypt inn í hollum svo nægt pláss væri fyrir alla í klefunum.  Guðrún hrakfallabálkaðist aðeins í sundinu, hrundi næstum á hausinn í vatnsrennibrautinni þegar hún var að fara með Andreu í hana. Græddi góða marbletti á klafaskapnum.  Að sundferðinni lokinni var haldið í Þakgil. Það var ótrúlega gaman, falleg leiðin þangað og mjög fallegt í Þakgili. Væri gaman að vera á tjaldstæðinu þar og ganga þarna um. Um kvöldmatarleytið var brunað af stað upp á Hellishóla til að geta borðað afmæliskvöldverð með Sigrunu, en hún varð þrítug á sunnudeginum :) og í tilefni afmælisins var gerður varðeldur í grillinu okkar. Strákarnir höfðu keypt eldivið á Hvoldsvelli. Þetta varð hinn fínasti varðeldur og hélt á okkur hita fram eftir nóttu. Guðrúnu tókst að hrakfallabálkast meira og bekkurinn sem hún sat á í tjaldvagninum hrundi í gólfið þegar hún og Andrea voru að spila, þar græddi hún annan marblett. Seinna um kvöldið tókst henni að hella yfir sig glasi af rauðvíni. Var greinilega ekki hennar dagur ;)   Á mánudeginum var síðan pakkað saman. Við fórum upp í bústað og vorum þar eina nótt. Það var ótrúlega gott að komast í sturtu og fá að sofa :)

Annars gekk allt ljómandi vel í útilegunni, fyrsta nóttin var soldið köld og varð Maríu kalt, hún fékk þá að fara ofan í svefnpokann hjá mömmu og hlýnaði við það. Hinar næturnar varð henni ekkert kalt.

IMG_7290

Posted in Fréttir | 1 Comment