Styttist vonandi í sumarið

Þá er apríl að verða búinn og sumarið virðist ekkert vera á leiðinni. Það mætti nú samt alveg að fara að koma.

Andrea Ruth var hjá Guðmundi (bæklunarlækni) í morgun. Hún hefur farið reglulega til hans eftir síðustu aðgerð. Hann var frekar hissa þegar hann sá hana. Fannst hún hafa stækkað töluvert mikið síðan í haust. Í haust var hann s.s. ekki nógu ánægður með þumalinn, þar sem sinaflutningurinn í hann virðist ekki hafa heppnast eins og vonast var til. Hann sá enga breytingu á þumlinum núna og talaði um að ef eitthvað ætti að gera, þá væri það að reyna að laga þumalinn. Það yrði þá gert með annarri aðgerð, sinaflutningur. Hann sagði að það væri alltaf gott að gera slíka aðgerð snemma en það væri líka gott að bíða og safna styrk og þannig. Það er það sem við erum að gera núna. Svo endurtók hann bara það sem við vissum fyrir að ákveðnir vöðvar í vinstri hendinni eru minni en í þeirri hægri. Honumm fannst reyndar mjög áhugavert að hann og einhver sérfræðingur frá Gautaborg (ekki Tomas) voru að gera eins aðgerð, og var gerð á Andreu, fyrir nokkrum dögum. Sinin í úlnliðnum virtist ekki tengjast neinum vöðva. Hann sagði þetta mjög sjaldgæft en nú er hann búin að sjá þetta tvisvar hér á Íslandi og fannst honum það mjög merkilegt. Kannski eitt af þessum “sér íslensku” fyrirbærum. En planið er bara eins og ávalt, vera dugleg að nota hendina, fylgjast með þumlinum og hvort að hendin fari að leita meira til vinstri síðan á að mæta aftur í haust.

IMG_6284
Af Maríu Þrá er það að frétta að hún stækkar og stækkar. Hún tók upp á því að velta sér af maga yfir á bak og var 9 vikna þegar það gerðist. Ef bera á þær systur saman þá var Andrea 10 vikna þegar hún velti sér þannig.. en hún gerði það bara í þetta eina skipti og svo ekki aftur fyrr en 4 mánaða. María Þrá er aftur á móti alveg dugleg að velta sér svona. Hana vantar bara herslumunin að koma sér af bakinu yfir á magan. Hún er hörku dugleg á leikteppinu og finnst það mjög gaman að sjá dótið sveiflast fyrir ofan sig. Andrea Ruth var að segja að henni hlakki svo til þegar María Þrá fer að tala. Þá fór ég að segja Andreu hvert var fyrsta orðið hennar “datt”. Andrea spurði þá afhverju það hefði verið hennar fyrsta orð. Sagði henni að það hefði líklega verið vegna þess hve gaman henni þótti að láta hluti detta á gólfið og þá sagði maður alltaf “datt”. Andrea benti þá á að fyrsta orðið hennar Maríu yrði líklega “NEI”. Spurði hana afhverju hún hélti það.. það stóð ekki á svari hjá minni. “Nú því við erum alltaf að segja “NEI” við Gefjunni.” Mikið rétt hjá henni…. Gefjun er nefnilega soldill prakkari og virðist finnast voða gaman að vera þar sem ekki má vera.

Nýjasta með Gefjunni er að fara út í göngutúra. Hún er núna búin að fara í tvö göngutúra með okkur (í gönguól). Pínu fyndið að vera með kött í bandi en það hentar. Hún er nefnilega drulluhrædd við bílana en við höldum að hún skammist sín pínu fyrir að vera í ól.. því hún læðist alveg þvílíkt, maginn á henni dregst næstum eftir götunni og svo ef hún er að mótmæla, vill ekki fara einhvert, þá leggst hún bara niður. Annars finnst henni voða gaman að sitja á vagninum og fylgjast með umhverfinu líða hjá. Þá er hún líka alveg örugg fyrir bílunum.

Posted in Fréttir | Tagged , , , , , , | 1 Comment

María Þrá Gísladóttir

Þá er sú yngsta komin með nafn :) Við skírðum í gærdag í efstuhliðinni og var dagurinn æðislegur út í eitt. Hann var langur en mjög góður, veðrið æðislegt og spáðum við í því aðeins um morgunin að skíra út á palli, en það var aðeins of kalt til þess. Einar fríkirikjuprestur skírði, hann skírði líka Andreu Ruth. Andrea sagði nafnið, en hún þurfti að æfa sig aðeins þar sem hún átti erfitt með að segja Þrá, sagði alltaf hrá. Ekki gaman að heita María Hrá ;) en hún stóð sig eins og hetja, sönn stór systir :)

Það var svo gaman að hitta alla ættingjana og ánægjulegt að svona margir gátu deilt deginum með okkur :)

Við viljum einnig þakka fyrir allar fallegu gjafirnar sem María Þrá fékk :)

Posted in Fréttir | 3 Comments

Til hamingju með afmælið Gísli!!

Hann Gísli varð þrítugur á mánudaginn, eins og flestir vita. fjölskyldan hélt upp á það með því að fara út að borða á Rauðará á laugardagskvöldið. Það var ofboðslega gaman og góður maturinn. Andrea var rosalega fín dama og mjög svo stillt og prúð á veitingastaðnum. Hún fékk að prófa að horfa smá á Mjallhvíti í símanum hans Gísla, en það gekk ekki upp því hún sagðist ekki heyra nógu vel. En henni var sagt að það mætti ekki hafa hærra til að trufla ekki aðra gesti veitingarstaðarins. Aðeins seinna um kvöldið þá var litlan eitthvað að kvarta yfir því að vera í bílstólnum þannig að ég setti spiladósina hennar í gang.  Heyrist þá í Andreu: ,, Mamma, viltu lækka í spiladósinni” En þetta var frábært kvöld. Litlan var alveg jafn stillt og stóra systirin.  Þær systur gáfu pabba sínum Liverpool bindi og svo fékk hann íslenska veiðihnífinn frá okkur líka. Á sjálfan afmælisdaginn gerðum við heimatilbúið Sushi og það er alltaf jafngott :)

Gísli fór síðan til Liverpool á þriðjudaginn til að fara á leikinn sem var í gærkveldi. Við mæðgur höfum því verið einar heima og verið á fullu að undirbúa skírnina og hefur það gengið bara vel. Dagurinn í dag fer í súpuundirbúning, bakstur og blómaskreytingagerð :)

Litlan er orðin 2ja mánaða og hún er orðin 4.990 gr. Hún er  held ég að taka smá vaxtarkipp núna, því hún hefur viljað drekka á tveggja tíma fresti síðustu 2 daga.

Posted in Fréttir | Comments Off

Ferðalag til eyja

Litla daman stækkar og stækkar. Hún fór í 6 vikna skoðun síðasta fimmtudag og var þá orðin 4.710 grömm og 55,5 cm. Ofboðslega stór stelpa :) svo stór að hún fór með mömmu sinni til Vestmannaeyja á föstudeginum. En það var s.s. vegna þess að Gunna langamma var svo mikið veik og ekki var búist við því að hún myndi ná sér upp úr veikindunum, en að öllum óvörum þá hjarnaði kella við og var í gær farin að skammast í hjúkkunum á sjúkrahúsinu og syngja, s.s. orðin sjálfri sér lík :) Við mæðgur komum svo heim í gær.  Það gekk rosalega vel að ferðast með hana. Hún var ljúf sem lamb í flugvélinni, líklega vegna stílsins sem hún fékk fyrir brottför en það var gert skv. læknisráði síðan hélt ég fyrir eyrun hennar á meðan á fluginu stóð.

Posted in Fréttir | 1 Comment

Hjarta, fótbolti,fjölgun og afmæli

Andrea fór til hjartalæknis á mánudaginn. Það heyrðust nefnilega svona aukaslög í 5 ára skoðuninni. Þetta varð smá ævintýri hjá okkur mæðgum þar sem við villtumst aðeins á leiðinni til læknisins. En hann var staddur á læknastöðinni við Hagamel. Ég gaf mér ekki tíma til að athuga á netinu nákvæmlega hvar þetta var, taldi mig vita það nokkurn vegin… en var með Tómasarhaga í huga… sem ég fattaði auðvitað þegar ég mætti á svæðið. Við vorum soldið seinar þar sem við lentum á öllum rauðu ljósunum og vorum komnar upp að háskólabíói kl 12:30, en það var einmitt tíminn sem Andrea átti að mæta á. VIð keyrðum þarna í hringi og fundum ekki Hagamel. Spurðum konu sem var í göngutúr hvar þessi blessaði melur væri og hún vísaði okkur. En hennar leið leiddi okkur að röngum mel, þar hittum við á póstburðarmann sem visaði okkur aðra leið.. en þá leið var ekki hægt að komast vegna einstefnugatna.. sem voru út um allt. En jæja eftir korters rúnt þá komumst við á leiðarenda. :) Andrea stóð sig eins og hetja, líkt og alltaf þegar hún fer til læknis. Læknirinn útskýrði líka allt mjög vel fyrir henni sem hann var að gera. En hann byrjaði á því að hlusta hana, tók hjartalínurit og mældi blóðþrýstinginn síðan gerði hann svona sónarskoðun á hjartanu. Andreu fannst mjög skrýtið en gaman að sjá hjartað sitt í sjónvarpinu og að heyra svona vel í því. :) En hún er s.s. með aukaslög en það eru svokölluð saklaus hjartaóhljóð og er ekkert til að hafa áhyggjur af.  Mun eldast af henni :)

IMG_5902

Andrea er síðan að velta því fyrir sér hvort hún eigi að fara að æfa fótbolta. Hún er ekki alveg viss.. hana langar í FH-búning og verðlaunapening. Hún hefur verið mjög áhugasöm um að æfa fótbolta í einhverja daga síðan allt í einu vill hún það ekki og svo vill hún það. Núna vill hún prófa að fara á æfingu og sjá hvernig þetta er. Þannig ætli það verði ekki raunin að hún prófi að mæta á æfingu næstu helgi.

Af litlunni er það að frétta að hún er orðin mánaðargömul. Hefur breyst í útliti og er orðin aðeins líkari pabba sínum. Hún er búin að stækka, alveg helling að mínu mati, finnst hún vera orðinn svoddans bolti :) Hún er búin að prófa að fara í göngutúr í vagninum sinum og finnst voða þægilegt að láta keyra sér, kvartar þegar vagninn stoppar.  Nú er markmiðið að venja hana af því, verður að geta sofið í vagninum þó hann sé ekki á ferð :)

Aisté vinkona eignaðist litla stelpu 4. mars.. eða kannski ekki svo litla. Það var búist við 14-15 marka stelpu en hún var 18 merkur og 52 cm. Hún var tekin með keisara en þeim mæðgum heilsast vel og eru komnar heim :) Við auðvitað óskum Aisté og Þorra innilega til hamingju með erfingjann :)

Það voru síðan tvö stór afmæli í mánuðinum, en einkasonur Rósu vinkonu varð 10 ára í dag, pínu skrýtið að hugsa til þess að hann sé orðinn svona stór. Finnst ekki svo langt síðan hann fæddist. Bryndis náði síðan 30 ára markinu á mánudaginn og verður því fagnað næst komandi laugardag!! Við verðum víst öll fullorðin á árinu ;)

Posted in Fréttir | Comments Off