Skilaboð frá Andreu til Yrju og Ronju

Video skilaboð að hætti 21 aldarinar til þýskalands.

Posted in Fréttir | 4 Comments

Smá update…

Smá fréttir af okkur. Litla skvísan dafnar vel, hún þyngdist um 340 gr. síðustu viku, rosalega dugleg :) Andrea er einnig búin að vera dugleg að hjálpa mömmu sinni. Á mánudaginn var skipulagsdagur í leikskólanum og tók hún sig því til og sópaði alla íbúðina og raðaði skónum inn í skáp, mamman var síðan skömmuð seinna um daginn fyrir að ganga ekki frá skónum sínum inn í skáp aftur eftir notkun!! Hún stendur sig rosalega vel í ljósunum og virðast þau virka mjög vel á exemið hennar :) Hún hefur t.d. alltaf verið frekar slæm eftir bað en eftir baðferðina í gær var alls ekkert að sjá, sem var mjög ánægjulegt.  :)

Fann þetta á barnalandi og ákvað að skella þessu inn, ýmislegt sem passar henni Andreu okkar.

Vatnsberinn

20. janúar – 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skilja heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.

Posted in Fréttir | 2 Comments

Jæja þá er famelían komin með video síðu :)

Út úr miklum umræðum við móðir mína er varðar myndböndin okkar þá hef ég ákveðið að endurnýja “Myndbönd” undirsíðuna okkar og þar að auki búin að færa öll myndbönd af youtube yfir á vimeo sem verður héðan í frá okkar hýsingar síða.

Til að komast inn á myndbanda síðuna verðið þið að slá inn “Password” : sem er : nafnið á kisunni okkar :) í litlum stöfum.

Hérna fyrir neðan er svo smá afrakstur af iMovies æfingu sem ég tók… svona til að læra aðeins á þetta :)

Posted in Fréttir | 1 Comment

Viðburðarríkur febrúar

Jæja eins og allir vita þá hefur febrúar verið frekar viðburðarríkur hjá okkur í Þrastarásnum.

Litla skvísan ákvað að koma í heiminn þann 8 febrúar, nennti ekki að bíða til 27. Hún sem sagt eins og systir sín fannst alveg nóg að vera bara 37 vikur í bumbunni. Það var svo sem fínt, ekki kvarta ég yfir því. Fæðingin gekk ofboðslega vel og dafnar sú stutta vel. Hún fékk smá gulu eins og við var að búast en er hún svo til farin núna. Við þurftum samt ekki að fara með hana í ljós. Hún er búin að ná fæðingarþyngd sinni og vel það. En hún fæddist 3.155 grömm (12,5 mörk) og er hún núna 16 daga gömul orðin 3.420 grömm.  Andrea Ruth er mjög stolt stór systir og er dugleg að hjálpa til.

Gefjun tekur nýja erfingjanum bara vel líka, vill þefa af henni annað slagið en lætur hana annars alveg í friði. En þegar maður heldur á litlunni þá er Gefjun oft mætt á svæðið og vill fá knús og kelerí líka. Reyndar fyrstu dagana eftir heimkomuna var Gefjun frekar erfið og gerði í því að gera það sem er bannað og alltaf þegar maður var upptekinn af að sinna litlunni.

Mikið er um afmæli í febrúar og startaði Elísabet Árný afmælishrinunni með því að verða þrítug þann 6. febrúar, síðan varð Jón Sævar 17 ára þann 11. febrúar og auðvitað annar stærsti dagurinn í febrúar var auðvitað sá 12 en þá varð Andrea Ruth 5 ára. Hún fékk tvær afmælisveislur. Fjölskyldan kom í afmæliskaffi á sjálfan afmælisdaginn og var það voða gaman. Andrea skemmti sér mjög vel og var ánægð með að litla systir var í veislunni og að hún væri í fína kjólnum sem Andrea gaf henni. Á laugardeginum (14. feb.) var síðan barnaafmælið, það var haldið að þessu sinni í Veröldinni Okkar í Smáralind og bauð Andrea vinum, frænkum og frændum. Það heppnaðist mjög vel og tókst Gísla vel að hafa stjórn á 15 börnum enda ekki við öðru að búast af honum.  Gulli lauk síðan afmælishrinunni með því að verða þrítugur þann 20. febrúar. Þannig það er mikið um veislur í febrúar og í framtíðinni hérna á bæ verður heilmikið að gera fyrstu vikurnar í febrúar.

Annað sem hefur gerst í febrúar er að Andrea fór í 5 ára skoðun, hún kom mjög vel út í þroskamatinu og stóð sig eins og hetja þegar hún fékk sprautuna síðan fór hún til augnlæknis í dag og lítur það ljómandi vel út. Hún hefur góða þrívíddarsjón, notar augun saman og rennur vinstra augað ekkert til lengur. Hún sá stafina í neðstu línunni en á samt að nota gleraugun áfram til þess að sjónin skerpist enn frekar og þá sérstaklega á vinstra auganu, þar sem það er fjarsýnna en það hægra.

Posted in Fréttir | Comments Off

Myndband

Komið í lag :)

p.s það er hægt að góna á þetta í HD ef smellt er á örina sem er þarna niðri í hægra horninu … :)

Posted in Fréttir | Tagged | Comments Off