Posts tagged guðrúnar
Köben
Oct 27th
Við, Maren, Elísabet, Þóra Sigga og ég, skelltum okkur til Köben um síðustu helgi. Það var ofboðslega gaman. Flugum út á fimmtudagsmorgni og höfðum því 3 daga í að versla og það var sko verslað
Fimmtudeginum eyddum við á strikinu. Það var mjög gaman að rölta þar og skoða um. Ekki var samt mikið verslað þá fyrir utan eitt par af GEÐVEIKUM skóm sem ég fann í Aldo. Maren fann sér líka eitt slíkt par í Aldo en einungis íslenskir bankastjórar hefðu haft efni á þeim
Það voru víst bara framleidd ansi fá pör af þessum tilteknu skóm og einungis 8 slík pör voru til í allri Danmörku. Við slöppuðum bara af um kvöldið, hlógum soldið mikið. Ég tók nefnilega með mér bréf sem ég fann heima hjá mömmu og pabba. En það voru bréf frá því að við vorum í 9 bekk. Flest voru þau frá Elísubetu til mín. Já maður var víst að skrifast á í tímum. Þau voru ógeðslega fyndin og verða vel geymt þangað til Elísabet giftir sig, þá verða þau dregin upp aftur
Á föstudeginum kíktum við í Fiskitorfuna og versluðum alveg slatta mikið. Maður gekk sig alveg upp að hnjám í þessari ferð. Kvöldið var síðan hápunktur dagsins en þá fórum við að borða á Reef ´n Beef. Maturinn var sjúklega góður. Við pöntuðum tvö forrétti sem við deildum á milli okkar en það var Krókódíll í einhvers konar orlydeigi og reyktur Emu sem var vafinn inn í svona “öðruvísi” tortillaköku. Í aðalrétt fengum við okkur allar Tazmanian devil, en það er medium rare Kengúrulund með sætum kartöflum, ætisþistlum og piparsósu. Kjötið var ótrúlega mjúkt og bráðnaði næstum því í munninum. Síðan í eftirrétt fengum við okkur Death by Chocolate. Þetta var ofboðslega gott allt saman og ekki svo dýrt einhver 5000.- á mann með víni og kokkteil.
Við gerðum síðan heiðarlega tilraun til að djamma í Köben og kíktum á Rosie McGee. Það var frekar gaman þar svona framan af kvöldinu. Við fífluðumst soldið með myndavélina og drukkum nokkrar tegundir af kokkteilum. Síðan ætluðum við að færa okkur um set en fundum engan skemmtilegan stað. Enda vorum við orðnar ansi þreyttar eftir tveggja daga labb þannig að við fórum bara snemma heim. Elísubet fannst það soldið lélegt af okkur.
Á laugardeginum kíktum við í Fields, þar var verslað enn meira. Ég verslaði samt mest í HM. Um kvöldið kíktum við í Tívolíið og það var GAMAN. Ég er svo stolt af mér, ég fór í RÚSSÍBANA!!!!! Það var geðveikt ætla sko pottþétt aftur langar að fara aftur til Köben bara til að geta borðað á Reef ´n Beef, kíkt í HM og farið í rússíbana
Það yrði sko góð ferð. Ég og Maren fórum svo í Star flyer en það er svona RISA róla, það var geðveikt maður sá bara næstum því yfir alla Köben.
Sunnudeginum eyddum við á Strikinu og Nýhöfn. Fórum í siglingu og það var djassband um borð að spila. Þetta var alveg 1,5 klst sigling. Farið var um höfnina og inn skurði. Maður sá ýmislegt, aftan á hafmeyjuna og svo sáum við sænskt sjóræningaskip. Við fórum síðan bara snemma upp á flugvöll, ansi fegin að við gerðum það því röðin í tax free dæmið var mjög stutt þegar við komum en gífurlega löng þegar við vorum búnar í henni.
Mig langar ofboðslega að fara í sumar til Danmerkur og vera í svona sumarhúsi. Það yrði örugglega gaman.
Þóra Sigga er líka búin að henda inn þó nokkuð mikið af myndum endilega kíkjið á þær !

8,8% kynbundinn launamunur
Sep 12th
Það var hádegisverðafundur í gær hjá Félagi viðskipta- og hagfræðinga. Verið var að kynna niðurstöðurnar úr kjarakönnuninni sem gerð var síðast liðið haust.
Þetta var mjög skemmtilegt, það var byrjað með því að flytja tölu um lífeyrissjóði og ítrekað hversu mikilvægt það er að velja réttan lífeyrissjóð. Síðan var flutt erindi um samning launa. Helstu reglur sem maður á að hafa í huga þegar kemur að því að semja um launin. Það var mjög fræðandi, hefði verið gott að vita sumt af þessu áður en ég samþykkti samninginn við Askar, en ég man það bara næst. Síðan var farið í niðurstöðurnar á könnuninni. Ótrúlegt að kynbundinn launamunur sé að hækka á milli ára, hann sagði samt að þetta væri ekki marktækur munur á milli 2005 og 2006 en augljóst að launamunurinn er ekki að lækka, þar sem hann var lægri 2003 en hann er í dag. 8,8% er rosalega mikið.
Eftir öll erindi þá var hægt að bera upp spurningar og spurði einn fyrirlesarinn hvort við konur værum sáttar við þessa þróun. Óþarfi að segja þá var það engin. Hann sagði að ástæðan gæti verið sú að þegar konur eiga að fara að semja um kjör fyrir sig sjálfa þá eru ekki nógu djarfar, þær biðja frekar um það sem þær vita að þær geta fengið heldur en það sem þær vilja.
Þannig við þurfum að taka okkur á, taka karlmennina til fyrirmyndar varðandi þetta.


skilaboð