Posts tagged Hitt og þetta
tvær vikur í jól..
Dec 10th
Jólaundirbúningurinn er allur vel á veg kominn. Jólakortin tilbúin eiga bara eftir að fara í póst. Við höfum aldrei verið svona snemma á ferðinni með þau áður. Andrea var ofboðslega dugleg í jólakortunum en hún sá um að skreyta þau
Við erum líka búin að skreyta, gerðum það á laugardaginn. Síðan á sunnudaginn komu, Hekla, Hrafnkell og Esther í piparkökubakstur. Það gekk bara ljómandi vel. Stelpurnar sáu síðan um að mála kökurnar. Hrafnkell vildi helst bara borða kremið, enda ofboðslega gott
Það er alltaf nóg að gera hjá manni á aðventunni, mér finnst þetta ofboðslega næs, geta gert hluti. Þegar ég var í skólanum þá var ekki hægt að gera neitt fyrr en maður var búinn í prófum og maður gat ekki slappað af og gert mikið af þessum skemmtilegum hlutum sem eru í boði í desember. En núna
þá er ég búin að fara á kertaskreytingarnámskeið með vinnunni, það var ofboðslega gaman. Lærðum að skreyta kerti með vaxi. Síðan í kvöld eru litlu jólin heima hjá Bryndísi, annað kvöld er ég að fara á glerlistanámskeið með gömlu vinnunni. Hlakkar rosa til þess. Síðan ætlum við Gísli að reyna að komast í jólamat hjá Vox. Næstu helgi ætla ég að reyna að komast með Andreu í bæinn, leyfa henni að kaupa jólagjöf handa pabba sínum. Það verður örugglega ævintýri
skilaboð