» María

frægð og frami
Það er  búið að vera alveg yndislegt síðustu daga, veðrið er bara æði. Við erum eiginlega bara búnar að vera út í göngutúrum og njóta veðurblíðunnar.

Á sunnudaginn þá fórum við mæðgur í göngutúr með Gefjunni. Kötturinn er þvílíkt hugaður og ætlaði að ráðast á labradorhund sem við mættum, en ég náði að taka hana upp áður en hún réðst á trýnið hundinum. Göngutúrinn endaði í efstuhlíðinni en Gísli var þar að myndast við að bóna bílinn, bíllinn orðinn glæsilegur. Gefjunni fannst þvílíkt gaman að elta hunangsflugurnar, soldið erfitt samt í ól. Anna amma og Valdi afi vorkenndu henni að vera í svona stuttri ól þannig að snúrubandið var tekið niður og lengd í ólinni hjá kisu. Kisa ánægð með það en tókst að flækja sig nokkrum sinnum. Þegar við komum heim þá var Gefjun svo þreytt eftir heilan dag í útiveru að hún svaf til miðnættis.. haggaðist ekki.

Auðvitað verður að segja frá júrókvöldinu. Allir ánægðir með árangurinn hjá Jóhönnu Guðrúnu. Andrea hélt með tyrkjum og finnum en var rosa ánægð með framlag Íslands. Hún söng með hástöfum og skemmti okkur öllum.  María vildi auðvitað vera með í teitinu og tók bara nokkra orkublunda yfir kvöldið svo hún gæti nú fylgst með.

Í gær fórum við María í heimsókn í hlíðarnar til þeirra Aisté og Amelíu. Skelltum okkur svo í göngutúr niðrí miðbæ og það var bara æðislega gaman.  María svaf allan tíman en Amelía vildi fylgjast með og vakti svo til allan tíman.  Þegar Andrea var búin á leikskólanum þá fórum við mæðgur og hittum E-bet inn í Kópavogi og tókum annan göngutúr. Andrea týndi fullt fullt af fíflum og þegar hún þefaði af þeim þá skellti hún nefinu alveg ofan í þá. Þannig hún varð ansi gul á nebbanum. Þegar við komum heim þá sagði ég henni að hún væri nú bara eins og sólin. Henni fannst það voða fyndið.  Yfir kvöldmatnum snerist umræðan um frægð og frama. En Andrea tilkynnti það að hún vill verða fræg, að allir eigi að þekkja hana. Ég spurði hana hvernig fræg hún vildi verða. Færgur læknir, frægur dansari, frægur söngvari, frægur lögfræðingur eða hvað? hún var fljót að svara því. Færg eins og Páll Óskar og Jóhanna Guðrún. Þá kom spurningin, “hvernig verður maður frægur’” Það verður að segjast að það er ljómandi góð spurning. Sögðum henni að hún yrði bara að leggja hart að sér, vera dugleg og ekki gefast upp.

jæja best að koma sér að  verki svo hægt sé að fara út í sólina.

Styttist vonandi í sumarið
Þá er apríl að verða búinn og sumarið virðist ekkert vera á leiðinni. Það mætti nú samt alveg að fara að koma.

Andrea Ruth var hjá Guðmundi (bæklunarlækni) í morgun. Hún hefur farið reglulega til hans eftir síðustu aðgerð. Hann var frekar hissa þegar hann sá hana. Fannst hún hafa stækkað töluvert mikið síðan í haust. Í haust var hann s.s. ekki nógu ánægður með þumalinn, þar sem sinaflutningurinn í hann virðist ekki hafa heppnast eins og vonast var til. Hann sá enga breytingu á þumlinum núna og talaði um að ef eitthvað ætti að gera, þá væri það að reyna að laga þumalinn. Það yrði þá gert með annarri aðgerð, sinaflutningur. Hann sagði að það væri alltaf gott að gera slíka aðgerð snemma en það væri líka gott að bíða og safna styrk og þannig. Það er það sem við erum að gera núna. Svo endurtók hann bara það sem við vissum fyrir að ákveðnir vöðvar í vinstri hendinni eru minni en í þeirri hægri. Honumm fannst reyndar mjög áhugavert að hann og einhver sérfræðingur frá Gautaborg (ekki Tomas) voru að gera eins aðgerð, og var gerð á Andreu, fyrir nokkrum dögum. Sinin í úlnliðnum virtist ekki tengjast neinum vöðva. Hann sagði þetta mjög sjaldgæft en nú er hann búin að sjá þetta tvisvar hér á Íslandi og fannst honum það mjög merkilegt. Kannski eitt af þessum “sér íslensku” fyrirbærum. En planið er bara eins og ávalt, vera dugleg að nota hendina, fylgjast með þumlinum og hvort að hendin fari að leita meira til vinstri síðan á að mæta aftur í haust.

Af Maríu Þrá er það að frétta að hún stækkar og stækkar. Hún tók upp á því að velta sér af maga yfir á bak og var 9 vikna þegar það gerðist. Ef bera á þær systur saman þá var Andrea 10 vikna þegar hún velti sér þannig.. en hún gerði það bara í þetta eina skipti og svo ekki aftur fyrr en 4 mánaða. María Þrá er aftur á móti alveg dugleg að velta sér svona. Hana vantar bara herslumunin að koma sér af bakinu yfir á magan. Hún er hörku dugleg á leikteppinu og finnst það mjög gaman að sjá dótið sveiflast fyrir ofan sig. Andrea Ruth var að segja að henni hlakki svo til þegar María Þrá fer að tala. Þá fór ég að segja Andreu hvert var fyrsta orðið hennar “datt”. Andrea spurði þá afhverju það hefði verið hennar fyrsta orð. Sagði henni að það hefði líklega verið vegna þess hve gaman henni þótti að láta hluti detta á gólfið og þá sagði maður alltaf “datt”. Andrea benti þá á að fyrsta orðið hennar Maríu yrði líklega “NEI”. Spurði hana afhverju hún hélti það.. það stóð ekki á svari hjá minni. “Nú því við erum alltaf að segja “NEI” við Gefjunni.” Mikið rétt hjá henni…. Gefjun er nefnilega soldill prakkari og virðist finnast voða gaman að vera þar sem ekki má vera.

Nýjasta með Gefjunni er að fara út í göngutúra. Hún er núna búin að fara í tvö göngutúra með okkur (í gönguól). Pínu fyndið að vera með kött í bandi en það hentar. Hún er nefnilega drulluhrædd við bílana en við höldum að hún skammist sín pínu fyrir að vera í ól.. því hún læðist alveg þvílíkt, maginn á henni dregst næstum eftir götunni og svo ef hún er að mótmæla, vill ekki fara einhvert, þá leggst hún bara niður. Annars finnst henni voða gaman að sitja á vagninum og fylgjast með umhverfinu líða hjá. Þá er hún líka alveg örugg fyrir bílunum.